Leikskólarnir Hálsaborg og Grandaborg fá Svansvottun
Tveir leikskólar í eigu Reykjavíkurborg, Hálsaborg og Grandaborg, hafa hlotið Svansvottun fyrir endurbætur á húsnæði sínu. Vottunin er liður í markvissri uppbyggingu borgarinnar þar sem aukin áhersla er lögð á gæði bygginga, sjálfbærni og heilnæmt umhverfi fyrir börn og starfsfólk. Áður hafði borgin hlotið Svansvottun fyrir endurbætur leikskólanna Fífuborgar og Litlu-Jarfar. Verkís kom að Svansvottun […]
Verkís tók á móti sendinefnd frá Ungverjalandi
Verkís fékk í síðustu viku heimsókn frá ungverskri sendinefnd undir forystu loftslagsfulltrúans Barbara Wassen, ásamt sendiherra Ungverjalands á Íslandi, Kristóf Altusz, og viðskiptafulltrúanum Bálint Bűcs. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna sér starfsemi Verkís og ræða tækifæri til samstarfs á sviði orkuskipta, jarðvarma og sjálfbærrar þróunar. Á fundinum var farið yfir reynslu og hlutverk Verkís í […]
Þórey Edda fjallaði um útboðsgögn í Svansvottuðum byggingum á málþingi Svansins
Svansvottaðar byggingar njóta sífellt meiri vinsælda á Íslandi og hefur uppbygging þeirra aukist verulega á undanförnum árum. Þann 5. mars stóðu Svanurinn og Iðan fræðslusetur fyrir málþingi um Svansvottaðar byggingar þar sem fjallað var um reynslu, áskoranir og lausnir í slíkum verkefnum. Á málþinginu komu saman fulltrúar frá byggingargeiranum, umsækjendur, leyfishafar, ráðgjafar, verktakar og verkkaupar, […]
Verkís styður við sjálfbæra hönnun með Svans- og BREEAM-vottunum
Sjálfbær hönnun í mannvirkjagerð skipta sífellt meira máli í daglegri starfsemi byggingariðnaðarins. Vottanir á borð við Svaninn og BREEAM hafa fest sig í sessi sem lykilverkfæri til að draga úr umhverfisáhrifum, stuðla að bættri orkunýtingu og tryggja heilnæmari húsnæði. Verkís hefur verið leiðandi á þessu sviði og veitt faglega ráðgjöf í fjölmörgum verkefnum þar sem […]
Frumdrög að deiliskipulagi fyrir innri hluta Tunguhverfis kynnt
Vinna stendur yfir við nýtt íbúðarhverfi á Ísafirði Verkís vinnur að gerð deiliskipulags fyrir innri hluta Tunguhverfis í Skutulsfirði fyrir Ísafjarðarbæ. Um er að ræða spennandi þróunarverkefni þar sem lögð er rík áhersla á sjálfbæra uppbyggingu og vistvænt borgarumhverfi í nánum tengslum við náttúru og útivistarsvæði. Frumdrög kynnt – greiningarvinna í gangi Í apríl 2025 […]
Lífsferilsgreiningar – Er þitt fyrirtæki tilbúið?
Í september 2025 tekur gildi breyting á byggingareglugerð sem kveður á um innleiðingu lífsferilsgreininga (e. Life Cycle Analysis, LCA). Þá verður gerð krafa um að framkvæma lífsferilsgreiningar fyrir öll ný byggingarleyfisskyld mannvirki í umfangsflokkum 2 og 3 skv., byggingarreglugerð sem eru stærri íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og opinberar byggingar. Frá og með 1. september 2025 þarf því […]
Sunna Liv Stefánsdóttir kynnti lífkol sem vistvænt byggingarefni
Verkís tók þátt í mikilvægu samtali um sjálfbærni í byggingariðnaði á málþinginu Byggjum til framtíðar Sunna Liv Stefánsdóttir, efnaverkfræðingur hjá Verkís, var meðal fyrirlesara á málþinginu Byggjum til framtíðar sem fram fór miðvikudaginn 11. júní í Háskólanum í Reykjavík. Þar flutti hún erindi um mikilvægi þess að nýta umhverfisvæn byggingarefni og kynnti sérstaklega lífkol (e. […]
Viðburður – Kynntu þér Evrópuverkefnin VERGE og GAMMA
Kynntu þér Evrópuverkefnin VERGE og GAMMA – Áhersla á sjálfbæra framleiðslu á ammoníaki til notkunar sem eldsneyti fyrir skip! Dagsetning: 18. júní 2025 frá kl. 8:30-11:00 Staðsetning: Fenjamýri, Gróska, Háskóli Íslands Komdu og taktu þátt í spennandi viðburði þar sem kynnt verða tvö nýstárleg verkefni styrkt af Horizon Europe sem skapa vonandi nýjar leiðir […]
Lífsferilsgreiningar í byggingariðnaði
Verkís stóð fyrir morgunverðarfundi í dag, miðvikudag 20. nóvember, um lífsferilsgreiningar í byggingariðnaði. Fundurinn var vel sóttur og viljum við þakka kærlega öllum þeim sem sáu sér fært að mæta. Fundurinn bar yfirskriftina Sjálbær þróun í byggingariðnaði: Hvernig getur byggingariðnaðurinn undirbúið sig fyrir breytingar á byggingarreglugerð. Áherslur fundarins voru þær lagabreytingar á byggingareglugerð sem kynntar […]
Verkís á COP29 í Aserbaíjan
Verkís er með tvo fulltrúa á COP29 sem fram fer í Baku í Aserbaíjan. Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri og Haukur Þór Haraldsson, viðskiptaþróunarstjóri. Þeir taka þátt ásamt níu öðrum fyrirtækjum sem skipa viðskiptasendinefnd Íslands með það hlutverk að halda á lofti framlagi Íslands í lofslagsmálum, kynna Ísland og þær lausnir sem það hefur upp á að […]
GAMMA verkefnið í fréttum
Kjartan Due Nielsen, Nýsköpunarstjóri Verkís, var á dögunum í viðtali við Morgunblaðið og talaði þar um GAMMA verkefnið. Á tímum þar sem loftslagsbreytingar og minnkun kolefnisspors skipta sköpum er Verkís í fararbroddi með GAMMA verkefninu, sem styður við orkuskipti í sjóflutningum. Verkefnið, sem styrkt er af Evrópusambandinu, einbeitir sér að þróun og innleiðingu tæknilausna sem […]
Fyrirlestrar um jarðvegsmengun
Verkís leggur mikla áherslu á rannsóknir tengdar mengun og umhverfisvöktun. Í næstu viku mun Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, umhverfis- og jarðefnafræðingur hjá Verkís og formaður Fagfélags um mengun á Íslandi (FUMÍS), flytja tvo fyrirlestra um jarðvegsmengun. Hún mun deila þekkingu sinni á þessu sviði og vekja athygli á áhrifum mengunar á umhverfið. Morgunverðarfundur í Háskóla Íslands […]
Verkís sá um rafmagnshönnun fyrir þrjá nýja hleðslugarða
Verkís sá um rafmagnshönnun fyrir þrjá nýja hleðslugarða sem Orka náttúrunnar (ON) hefur sett upp. Þeir eru á Glerártorgi á Akureyri, Digranesgötu í Borgarnesi og við Perluna í Öskjuhlíð. Auk þess hannaði Verkís fráveitu fyrir hleðslusvæðið í Borgarnesi og tók þátt í hönnun á heimtaugum fyrir stöðvarnar á Akureyri og Perlunni í samstarfi við Norðurorku og […]
Úthlutað úr Aski
Úthlutað úr Aski. Þann 9. febrúar sl. var úthlutað úr Aski til nýsköpunar og mannvirkjarannsókna. Sandra Ósk Karlsdóttir tók á móti styrk fyrir hönd Verkís fyrir verkefni sem ber heitið Fleygrúnir hringrásar mannvirkja (The cuneiform of circular construction (CUNEIFORM)). Þetta verkefni snýr að því að stuðla að vistvænni mannvirkjagerð með því að skoða aðgerðir hjá […]
Verkís leiðir orkuskiptaverkefnið WHISPER
Verkís leiðir orkuskiptaverkefnið WHISPER. Orkuskiptaverkefnið WHISPER, sem er undir forystu Verkís, er fjögurra ára verkefni sem er ætlað að þróa og prófa nýsköpunarlausnir í orkuskiptum á sjó sem geta dregið verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda hjá flutningaskipaflota heimsins, sem stuðlar að um það bil 2,5% af losun koltvísýrings á heimsvísu. Fjölbreyttur hópur evrópskra aðila vinna að […]
Verkís fær styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs
Verkís fær styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs. Verkís var eitt af fjórum fyrirtækjum sem að fengu styrk frá utanríkisráðuneytinu úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu, sem veittur var í síðustu viku. Markmið sjóðsins er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífsins til þróunarsamvinnu. Hin fyrirtækin voru Tern systems, As We Grow og Creditinfo Group. Verkefni Verkís ber […]
Verkís í Gryfino
Verkís í Gryfino. Í síðasta mánuði tók Verkís þátt í ráðstefnu í Póllandi þar sem verkefnið „Adaptation to Climate Change through the development of Green and Blue infrastructure in Gryfino” var kynnt. Á ráðstefnunni hélt Sigurður Grétar Sigmarsson, vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís, kynningu á blágrænum ofanvatnslausnum, og Haukur Þór Haraldsson, viðskiptaþróunarstjóri hjá Verkís, hélt almenna kynningu […]
Sidewind og Verkís
Sidewind og Verkís. Undanfarin misseri hafa Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra heimsótt spennandi íslensk nýsköpunarfyrirtæki. Í gær heimsóttu þau fyrirtækið Sidewind og skoðuðu láréttar vindmyllur sem að fyrirtækið hefur hannað. Verkís var með sína fulltrúa á staðnum þar sem mikið og gott samstarf hefur verið […]
Fyrsta skemmtiferðaskipið landtengt í Reykjavík
Fyrsta skemmtiferðaskipið landtengt í Reykjavík. Á þriðjudaginn síðasta var fyrsta skemmtiferðaskipið landtengt í Reykjavík. Skipið sem fékk þennan heiður er norskt og heitir Maud í höfuðið á skipi fræga norska landkönnuðarins Amundsen. Verkís hf kom að gerð útboðsgagna og eftirlits með lágspennu landtengingu fyrir skemmtiferðaskip við Faxagarð við gömlu höfnina í Reykjavík. Um er að […]
Jarðvarmaverkefni í Úkraínu
Jarðvarmaverkefni í Úkraínu. Verkís stýrir uppbyggingarverkefni í Úkraínu með stuðningi frá Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins. Verkís hlaut nýverið styrk upp á rúmar níu milljónir króna til að undirbúa virkjun grænnar orku í vestur Úkraínu að stríði loknu. Meginmarkmið verkefnisins er að greina eftirsóknarverð jarðhitasvæði og skoða hagkvæmni þess að nýta jarðhita með beinum hætti; til húshitunar, í […]
Samstarfsráðstefna í Póllandi
Samstarfsráðstefna í Póllandi. Tveir starfsmenn Verkís tóku þátt í samstarfsráðstefnu á milli Póllands og Íslands í Varsjá í dag. Á ráðstefnunni var fjallað um jarðhita, orkuskipti, kolefnisföngun og geymslu. Þorleikur Jóhannesson, vélaverkfræðingur á Orku- og iðnaðarsviði Verkís, hélt erindi fyrir hönd fyrirtækisins þar sem hann fjallaði um reynslu Verkís á sviði jarðvarma og þá ráðgjöf […]
Verkís í samstarf um jarðhita á Indlandi
Verkís í samstarf um jarðhita á Indlandi. Indverska ráðgjafafyrirtækið Techon undirritaði fyrr í þessum mánuði, ásamt Verkís og ISOR, viljayfirlýsingu um samstarf um jarðhitavinnslu og -nýtingu á Indlandi. Fyrirtækin þrjú hafa um nokkurra ára skeið skoðað tækifæri á þessu sviði í landinu og vinna saman að jarðhitavirkjun á í héraðinu Puga á Indlandi. Vaxandi áhugi […]
Niðurdæling hafin á Nesjavöllum
Niðurdæling á koldíoxíði (CO2) og brennisteinsvetni (H2S) frá Nesjavallavirkjun er hafin eftir að ný tilraunastöð Carbfix til kolefnisföngunar- og förgunar við virkjun Orku náttúrunnar á Nesjavöllum var tekin í notkun. Tilraunastöðin sem var þróuð og smíðuð fyrir verkefnið er færanleg, sem opnar möguleika á að nýta hana í önnur tilraunaverkefni á vegum Carbfix síðar meir. […]
Verkefni Verkís hlýtur styrk úr Aski
Verkefni Verkís hlýtur styrk úr Aski. Verkefni Verkís, Sjálfbær stýring jarðefnaflutninga á höfuðborgarsvæðinu, hlaut styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknasjóði í síðustu viku. Verkefnið er meðal þeirra sem tengjast orkunýtingu og/eða losun gróðurhúsalofttegunda vegna mannvirkjagerðar. Þrjátíu og níu verkefni hlutu styrk að þessu sinni og afhentu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Sigurður Ingi […]
Verkís mælir matarsóun á Íslandi
Verkís mælir matarsóun á Íslandi. Umhverfisstofnun stendur um þessar mundir fyrir rannsókn á matarsóun á Íslandi. Skoða á matarsóun og matartap allt frá frumframleiðslu til neytenda. Kortlagning matarsóunar er ein af forsendum þess að hægt verði að grípa til markvissra aðgerða til að draga úr sóun. Verkís vinnur rannsóknina fyrir hönd Umhverfisstofnunar. Verkefnið felst í […]
Verkís leiðir nýsköpunarverkefni í orkuskiptum
Verkís leiðir 1,4 milljarða króna nýsköpunarverkefni í orkuskiptum. Orkuskiptaverkefnið WHISPER hefur hlotið 1,4 milljarða króna styrk til fjögurra ára frá Evrópusambandinu. Verkefninu er ætlað að þróa og prófa nýsköpunarlausnir í orkuskiptum á sjó sem geta dregið verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda hjá flutningaskipaflota heimsins. WHISPER er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni en íslensk fyrirtæki eru þar í meirihluta. Verkís […]
