Yfirlit verkefnis
Verkís hf vann lífsferilsgreiningar (LCA) fyrir jarðvarmavirkjanir HS Orku, Svartsengi og Reykjanesvirkjun. Í Svartsengi er unnin raforka og einnig heitt vatn úr jarðvarma. Ársframleiðsla á varmaorku er 190 MWth en 578 GWh á raforku. Í Reykjanesvirkjun er aðeins raforkuvinnsla en ársframleiðsla er um 800 GWh.
HS Orka ákvað að láta framkvæma lífsferilsgreiningu fyrir virkjanir sínar vegna flokkunarreglugerðar Evrópusambandsins (e. EU Taxonomy) en reglugerðin gerir það mögulegt að flokka atvinnustarfsemi eftir því hvort hún er umhverfissjálfbær eða ekki.
Sitthvor lífsferilsgreiningin var framkvæmd fyrir Svartsengi annars vegar og Reykjanesvirkjun hins vegar. Markmið greininganna var að meta losun gróðurhúsalofttegunda á hverja framleidda orkueiningu (KWh). Við vinnslu greininganna var stuðst við ISO staðlana 14040 og 14044. Verkefnið var nokkuð flóknara í framkvæmd heldur en lífsferilsgreiningar fyrir nýbyggingar eða nýjar framkvæmdir þar sem að báðar virkjanir hafa verið í rekstri í tugi ára.
Niðurstöður greininganna gefa kolefnisspor í einingunni CO² ígildi á hverja kílóvattsstund. Skýrslurnar með frekari upplýsingum og niðurstöðum má finna hér: Útgefið efni – HS Orka.
578GWH
Árleg raforkuframleiðsla Svartsengis
800gwh
Árleg raforkuframleiðsla Reykjanesvirkjunar
190mw
Ársframleiðsla varmaorku í Svartsengi
Áskorunin
Markmiðið var að meta umhverfisáhrif tveggja jarðvarmavirkjana sem hafa verið í rekstri í áratugi og leggja þannig mat á kolefnisspor núverandi orkuframleiðslu. Verkefnið var flóknara en hefðbundin LCA-greining fyrir nýjar byggingar eða framkvæmdir þar sem taka þurfti tillit til langrar rekstrarsögu virkjana og núverandi innviða.
Jafnframt þurfti að tryggja að greiningarnar uppfylltu viðeigandi alþjóðlega staðla og gætu nýst í tengslum við flokkunarkerfi Evrópusambandsins, EU Taxonomy.
Lausnin okkar
Verkís framkvæmdi tvær aðskildar lífsferilsgreiningar, annars vegar fyrir Svartsengi og hins vegar fyrir Reykjanesvirkjun. Við greininguna voru umhverfisáhrif orkuframleiðslunnar metin með áherslu á losun gróðurhúsalofttegunda á hverja framleidda orkueiningu.
Greiningarnar voru unnar samkvæmt ISO 14040 og ISO 14044 og niðurstöðurnar settar fram með samræmdum hætti þannig að unnt væri að meta kolefnisspor orkuframleiðslunnar.
Niðurstaðan
Greiningarnar veittu HS Orku skýra mynd af kolefnisspori raforkuframleiðslu í Svartsengi og Reykjanesvirkjun, mælt í CO₂-ígildum á hverja kílóvattsstund. Niðurstöðurnar skapa þannig gagnagrunn fyrir mat á umhverfisframmistöðu virkjana og nýtingu upplýsinga í tengslum við EU Taxonomy.