Skip to content
07/05/2026

Leikskólarnir Hálsaborg og Grandaborg fá Svansvottun

© www.svanurinn.is
Þórey Edda Elísdóttir, Umhverfisverkfræðingur hjá Verkís, Snjólaug Tinna Hansdóttir frá Eflu, Bergþóra Góa Kvaran frá Umhverfisstofnun, Ari Páll Pálsson verkefnastjóri Reykjavíkurborgar í verkinu og Erna Guðlaugsdóttir leikskólastjóri Grandaborgar.
www.svanurinn.is

Tveir leikskólar í eigu Reykjavíkurborg, Hálsaborg og Grandaborg, hafa hlotið Svansvottun fyrir endurbætur á húsnæði sínu. Vottunin er liður í markvissri uppbyggingu borgarinnar þar sem aukin áhersla er lögð á gæði bygginga, sjálfbærni og heilnæmt umhverfi fyrir börn og starfsfólk. Áður hafði borgin hlotið Svansvottun fyrir endurbætur leikskólanna Fífuborgar og Litlu-Jarfar. Verkís kom að Svansvottun fyrir þrjá af fjórum þessara leikskóla. Fífuborg var alfarið í höndum Verkís, bæði ráðgjöf og eftirlit.

Svansvottunin staðfestir að framkvæmdirnar uppfylli strangar kröfur um meðal annars innivist, rakaöryggi, orkunýtingu og notkun byggingarefna sem eru bæði umhverfisvænni og öruggari fyrir heilsu notenda. Slíkar kröfur eru í takt við aukna áherslu á sjálfbærni í mannvirkjagerð og mikilvægi þess að skapa öruggt og heilnæmt umhverfi fyrir börn frá fyrstu árum.

Vottorðið

Á undanförnum árum hefur sífellt meiri athygli beinst að áhrifum byggingarefna og innivistar á heilsu fólks, sérstaklega barna sem eru viðkvæmari fyrir efnaáreiti úr umhverfinu en fullorðnir. Þar skiptir miklu máli að velja byggingarvörur og lausnir sem uppfylla strangar kröfur um efnainnihald, loftgæði og endingu.

Sérfræðingar hjá Verkís hafa margra ára reynslu af ráðgjöf vegna Svansvottana og annarra sjálfbærnivottana fyrir mannvirki. Verkís býður upp á ráðgjöf, verkefnastjórn og hönnun samkvæmt kröfum Svansins ásamt umsjón með umsóknum og eftirfylgni í gegnum allt ferlið. Verkís er jafnframt skráður leyfishafi fyrir Svansvottanir og getur því borið ábyrgð á og haldið utan um vottunarferlið fyrir viðskiptavini.

Helstu áherslur Svansvottunar eru meðal annars:

  • Að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum mannvirkja
  • Að stuðla að heilnæmari og öruggari byggingum
  • Að tryggja aukin gæði og endingu bygginga
  • Að draga úr rekstrarkostnaði með markvissum lausnum
  • Að takmarka notkun skaðlegra efna og stuðla að betri innivist

Verkís veitir einnig ráðgjöf við gerð umhverfisyfirlýsinga (EPD) fyrir byggingarefni og vörur, sem gegna sífellt stærra hlutverki í sjálfbærri mannvirkjagerð og eru oft forsenda þess að hægt sé að nýta vörur í Svansvottaðar byggingar.

Með aukinni áherslu á sjálfbærni, heilsu og ábyrg efnisval má ætla að Svansvottanir muni gegna enn stærra hlutverki í þróun framtíðarmannvirkja á Íslandi.

Heimsmarkmið

Þórey Edda Elísdóttir, Umhverfisverkfræðingur hjá Verkís, Snjólaug Tinna Hansdóttir frá Eflu, Bergþóra Góa Kvaran frá Umhverfisstofnun, Ari Páll Pálsson verkefnastjóri Reykjavíkurborgar í verkinu og Erna Guðlaugsdóttir leikskólastjóri Grandaborgar.
© www.svanurinn.is