Skip to content
Þjónusta

Efnaöryggi

Verkís býður upp á fjölbreytta þjónustu tengda efnaöryggi.

Markmið Verkís er að tryggja örugga meðhöndlun, geymslu og notkun efna í samræmi við gildandi reglur og staðla.



Örugg meðhöndlun og notkun efna

Verkís veitir faglega ráðgjöf og lausnir á sviði efnaöryggis, með áherslu á að tryggja öryggi starfsfólks og umhverfis. Við bjóðum upp á heildstæða nálgun, allt frá áhættumati og merkjum til gerðar öryggisleiðbeininga og mat á efnaþoli.

Verkís framkvæmir áhættumat við meðhöndlun, geymslu og notkun efna og efnavara. Matið metur hugsanlega áhættu og veitir skýrar leiðbeiningar til að draga úr hættu á slysum og tryggja öruggt vinnuumhverfi.

Til að forðast slys eru framleiðendur og innflytjendur skylt að flokka og merkja efnavörur. Flokkun byggir á áhrifum efna á heilsu, eðliseiginleikum þeirra og áhrifum á umhverfið. Út frá flokkuninni eru gerðar kröfur um merkingar, umbúðir, notkun og sölu efnisins, sem tryggja örugga meðhöndlun.

Öryggisblöð (SDS) veita staðlaðar og mikilvægar leiðbeiningar um örugga meðhöndlun, geymslu og flutning efna. Verkís sér um gerð, úttekt og uppfærslu slíkra leiðbeininga, til að tryggja fullnægjandi öryggisstaðla í öllum aðstæðum.

Efnaþol lýsir hæfni efna og búnaðar til að þola snertingu við mismunandi efni án þess að skemmast eða missa eiginleika sína. Þetta er sérstaklega mikilvægt í iðnaði þar sem efni koma í snertingu við sýrur, basa, leysiefni og önnur ætandi efni. Verkís framkvæmir greiningu á efnaþoli til að tryggja öryggi og endingu búnaðar og vinnslukerfa.

Þjónusta

  • Efnaáhættumat
  • Merkingar fyrir efnavörur
  • Gerð öryggisleiðbeininga
  • Mat og prófun á efnaþoli
  • Aðstoð við val á framleiðslubúnaði



Tengiliðir

Hugrún Gunnarsdóttir
Fiskifræðingur M.Sc. / Viðskiptastjóri
Svið: Samgöngur og umhverfi
hug@verkis.is