Leyfismál með vistvænum áherslum
Verkís veitir heildstæða ráðgjöf og þjónustu tengda umsóknum um starfsleyfi, framkvæmdaleyfi og áhrifamat vatnshlota.
Starfsleyfi eru nauðsynleg fyrir atvinnurekstur og framkvæmdir sem geta haft mengun í för með sér samkvæmt reglugerð. Slík leyfi eru veitt af Umhverfisstofnun eða heilbrigðisnefndum þegar starfsemi uppfyllir tilskildar kröfur og heimila rekstur að hluta eða öllu leyti. Sérfræðingar Verkís aðstoða við að greina kröfur sem gilda um starfsleyfi, sjá um undirbúning og umsjón umsóknarferlisins, auk vöktunar og mælinga sem tengjast starfsleyfisumsóknum.
Framkvæmdaleyfi eru nauðsynleg fyrir framkvæmdir sem hafa meiriháttar áhrif á umhverfi eða breyta ásýnd þess. Slík leyfi eru veitt af viðkomandi sveitarstjórn og skulu í samræmi við skipulag svæðis. Verkís veitir faglega ráðgjöf við skilgreiningu krafna, annast gerð umsókna fyrir verkaupa og tryggir þannig skilvirkt og gagnsætt leyfisferli.
Áhrifamat vatnshlota er krafist fyrir framkvæmdir og starfsemi sem geta haft áhrif á vatn og vatnshlot, svo sem fiskeldi, vegagerð, efnistöku og virkjanir. Áður en leyfi er veitt þarf að meta hvort framkvæmd eða starfsemi geti haft neikvæð áhrif á umhverfismarkmið vatnshlots. Verkís sér um gerð áhrifamats fyrir mismunandi gerðir vatnshlota, þar á meðal grunnvatn, straumvötn, strandsjó og árósavatn, og veitir jafnframt aðstoð við umsóknir um breytingar á vatnshlotum.
Þjónusta
- Kröfur starfsleyfa
- Umsjón umsóknarferlis
- Vöktun og mælingar
- Gerð áhrifamats vegna vatnshlota
- Gerð umsókna við breytingar á vatnshlotum