Skip to content

Þjónusta

Loftslagsmál

Verkís býður upp á fjölbreyttar þjónustur sem styðja við markmið fyrirtækja og stofnana um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og efla sjálfbærni.

Með viðurkenndum aðferðum og staðlaðri aðferðafræði aðstoðum við viðskiptavini við að greina, reikna og draga úr kolefnislosun á öllum stigum verkefna.

Fyrirspurn um ráðgjöf


Styrkjum loftslagsmarkmið með ráðgjöf

Verkís veitir faglega ráðgjöf á sviði loftslagsmála og sjálfbærni, þar á meðal kolefnisbókhald, losunarheimildir, útreikning kolefnisspors og kolefnisverð. Markmiðið er að styðja fyrirtæki og stofnanir við að draga úr losun, bæta rekstur og ná markmiðum sínum í loftslagsmálum.

Kolefnisbókhald er grundvöllur markvissrar stefnumótunar í loftslagsmálum. Með reglulegu bókhaldi yfir losun gróðurhúsalofttegunda fæst yfirsýn yfir helstu losunarþætti og tækifæri til umbóta. Verkís aðstoðar fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum við uppsetningu, framkvæmd og eftirfylgni kolefnisbókhalds, í samræmi við viðurkennda staðla.

Verkís sér um undirbúning og umsóknir um losunarheimildir fyrir stóriðju. Þjónustan felur í sér útreikninga, skýrslugerð og samskipti við stjórnvöld, auk úttektar á losun og rekjanleika gagna. Allt er unnið í samræmi við kröfur laga og reglugerða, með áherslu á nákvæmni og traust gagnsæi.

Með viðurkenndum aðferðum er hægt að reikna út kolefnisspor vöru, þjónustu, framkvæmda eða fyrirtækis og greina helstu losunarþætti. Útreikningar byggja á gögnum um hráefnisnotkun, framleiðsluferli, flutninga og orkunotkun. Slík greining veitir mikilvægar upplýsingar sem nýtast til að draga úr losun, bæta rekstrarárangur og styðja við sjálfbærnimarkmið. Verkís getur séð um bæði einfalda útreikninga og útreikninga í samræmi við alþjóðlega staðla.

Kolefnisverð setur verðmiða á hvert tonn af losun gróðurhúsalofttegunda og skapar þannig hvata til að draga úr losun og fjárfesta í sjálfbærari lausnum. Verkís metur kolefnislosun verkefna, leggur mat á áhrif og finnur tækifæri til umhverfisvænna úrbóta. Einnig getur fyrirtækið reiknað kolefnisverð sem hluta af tilboðum eða stefnumótun í loftslagsmálum.


Tengiliðir

Hugrún Gunnarsdóttir
Fiskifræðingur M.Sc. / Viðskiptastjóri
Svið: Samgöngur og umhverfi
hug@verkis.is


Áhersla á minni losun og sjálfbærni

Verkís veitir ráðgjöf í loftslagsmálum og aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að greina og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Með sérfræðiþekkingu á kolefnisbókhaldi, kolefnisspori og losunarheimildum styðjum við við markvissar aðgerðir og sjálfbærari ákvarðanatöku.


Exstensive Geothermal Energy Solutions


Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat.


Verkís aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að setja upp og framkvæma kolefnisbókhald til að skapa yfirsýn yfir losun gróðurhúsalofttegunda. Við reiknum kolefnisspor fyrirtækja, vara, þjónustu og framkvæmda með viðurkenndum aðferðum og greinum tækifæri til að draga úr losun.


Verkís veitir ráðgjöf vegna losunarheimilda fyrir stóriðju, þar á meðal við útreikninga, skýrslugerð og umsóknir. Við aðstoðum einnig við úttekt á losun og rekjanleika gagna til að tryggja að kröfur laga og reglugerða séu uppfylltar.


Verkís metur kolefnislosun og ráðleggur um beitingu kolefnisverðs við áætlanagerð, tilboð og stefnumótun. Með því að meta kostnað og áhrif losunar styðjum við fyrirtæki við að greina tækifæri til úrbóta, forgangsraða aðgerðum og taka upplýstar ákvarðanir um loftslagsmál.


Ráðgjöf í loftslagsmálum með áherslu á minni losun og sjálfbærni

Verkís veitir ráðgjöf í loftslagsmálum og aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að greina og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Með sérfræðiþekkingu á kolefnisbókhaldi, kolefnisspori og losunarheimildum styðjum við við markvissar aðgerðir og upplýsta ákvarðanatöku. Við vinnum að lausnum sem stuðla að minni umhverfisáhrifum og sjálfbærari rekstri.


Hönnun náttúrumiðaðra lausna til að safna, seinka og meðhöndla ofanvatn og draga úr álagi á fráveitukerfi.


Ráðgjöf og útfærsla aðgerða til að endurheimta votlendi, efla líffræðilega fjölbreytni og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.


Aðstoð við uppsetningu og framkvæmd kolefnisbókhalds til að greina losun gróðurhúsalofttegunda og fylgjast með árangri í loftslagsmálum.


Undirbúningur umsókna og gagna vegna losunarheimilda fyrir stóriðju, þar á meðal útreikningar og skýrslugerð samkvæmt viðeigandi kröfum.


Útreikningur á kolefnisspori fyrirtækja, vara, þjónustu og framkvæmda með viðurkenndum aðferðum.


Greining og áætlun um kolefnislosun verkefna til að skapa yfirsýn yfir helstu losunarþætti og tækifæri til úrbóta.


Mat á kolefnisverði og ráðgjöf um umhverfisvænni valkosti sem styðja við minni losun og upplýsta ákvarðanatöku.