Yfirlit verkefnis
Hreinsistöðvar í Bergen eru í Ytre Sandviken nærri miðbænum, í Kvernevik í austurhluta byggðarinnar, við Flesland í vesturhluta byggðarinnar og í Holen sem er í norðvesturhluta byggðarinnar. Allar stöðvarnar eru staðsettar inni í berghvelfingum.
Auk endurbyggingu hreinsistöðvanna verður byggð biogasstöð i Rådalen í vesturhluta byggðarinnar, sem taka mun við úrgangi frá öllum stöðvunum.
Framkvæmdum er lokið við hreinsistöðina í Ytre Sandviken. Gangsetning og prufukeyrsla hófst haustið 2014 og er stöðin komin í fullan rekstur.
Í Kvernevik er vinnu við uppsteypu að mestu lokið. Vinna við uppsetningu hreinsibúnaðar, lagna, loftræsingu og raflagna er langt komin. Gert er ráð fyrir að allri vinnu verði að mestu lokið haustið 2015 og í framhaldi af því hefjist gangsetning og prufukeyrsla á stöðinni. Í Fleslandi er unnið við uppsteypu inni í hreinsistöðinni.
Í Kvernevik og Fleslandi er einnig unnið við byggingu þjónustubygginga vegna hreinsistöðvanna. Þjónustubyggingin í Fleslandi hefur verið tekin í notkun og verið er að ljúka við bygginguna í Kvernevik.
370000
Íbúar sem stöðvarnar geta þjónustað
Áskorunin
Verkefnið fól í sér endurbyggingu og stækkun fjögurra stórra skólphreinsistöðva sem allar eru staðsettar inni í berghvelfingum. Umfang framkvæmdanna og ólíkar aðstæður á hverjum stað kröfðust vandaðrar samræmingar hönnunar, byggingarframkvæmda og uppsetningar nýs hreinsibúnaðar, lagna, loftræsingar og rafkerfa.
Jafnframt þurfti að tryggja áframhaldandi virkni fráveitukerfisins á meðan á uppbyggingunni stóð.
Lausnin okkar
Verkefnið byggði á heildstæðri endurbyggingu og stækkun hreinsistöðvanna, ásamt nýjum þjónustubyggingum og lífgasstöð í Rådalen. Með uppfærðum hreinsikerfum, lögnum, loftræsingu og rafkerfum var unnið að því að auka afkastagetu og bæta meðhöndlun fráveituvatns.
Niðurstaðan
Verkefnið styrkir fráveituinnviði Bergen til framtíðar og gerir hreinsistöðvunum kleift að meðhöndla skólp frá um 370.000 íbúum, auk atvinnustarfsemi á svæðinu. Endurbyggðar stöðvar og ný lífgasstöð skapa öflugri og sjálfbærari innviði fyrir fráveitu og meðhöndlun úrgangs.