Skip to content

Verkefni

Dælustöð og geymir

Mikil fólksfjölgun hefur verið á Árborgarsvæðinu síðustu ár og því var þörf á auknum afköstum með nýrri dælustöð Selfossveitna.

Við hönnun á stöðinni var miðað við fjórar dælur en lagt upp með að ein dæla sé alltaf til vara.



Yfirlit verkefnis

Samanlagður er vatnsforði nýja og gamla hitavatnsgeymisins allt að átta klukkustundir miðað við núverandi notkun, en eldri geymirinn dugði einn um sig aðeins í þrjár til fjórar klukkustundir. 

Með nýju stöðinni hefur orðið gríðarleg breyting á vinnuumhverfi frá því sem áður var. Byggt var nýtt hús yfir stöðina með öflugri loftræsingu og milligangur yfir í núverandi skrifstofuhúsnæði, þar sem eldri dælustöð var.

Verkís hannaði nýju dælustöðina sem og heitavatnsgeymi fyrir stöðina, ásamt því að forrita stjórnbúnað og gangsetja stöðina. Verkís sá einnig um deiliskipulag vegna framkvæmdarinnar og hönnun lóðar Selfossveitna og áhaldahúss sveitarfélagsins Árborgar. Þá sér Verkís einnig um skipulagningu á stofnæðum Selfossveitna að og frá dælustöðinni auk skipulagningu lagna og strengja annarra stofn- og dreifiveitna sem eiga lagnir um lóðina.

4

Dælur í nýrri dælustöð



8klst

Samanlagður vatnsforði



Áskorunin

Fólksfjölgun og aukin eftirspurn eftir heitu vatni á Árborgarsvæðinu skapaði þörf fyrir meiri afkastagetu og aukið rekstraröryggi Selfossveitna. Jafnframt þurfti að bæta vinnuumhverfi við dælustöðina og samþætta nýja mannvirkið við núverandi innviði og lagnakerfi á lóðinni.

Lausnin okkar

Verkís hannaði nýja dælustöð og heitavatnsgeymi og sá um forritun stjórnbúnaðar og gangsetningu stöðvarinnar. Einnig var hannað nýtt hús yfir dælustöðina með öflugri loftræsingu.

Verkís annaðist jafnframt deiliskipulag framkvæmdarinnar, hönnun lóðar Selfossveitna og áhaldahúss Árborgar og skipulagningu stofnæða Selfossveitna að og frá dælustöðinni. Þá var tekið tillit til lagna og strengja annarra stofn- og dreifiveitna sem liggja um lóðina.

Niðurstaðan

Ný dælustöð og heitavatnsgeymir auka afkastagetu og rekstraröryggi Selfossveitna og tryggja meiri vatnsforða en áður. Með verkefninu var jafnframt skapað betra og öruggara vinnuumhverfi fyrir starfsfólk og lagður grunnur að áframhaldandi uppbyggingu veitukerfisins í takt við vöxt svæðisins.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Austurvegur 67, Selfossi


Stærð:


600 l/s, 4.500 tonn


Verktími:


2017 – 2020






Heimsmarkmið