Skip to content

Verkefni

Umhverfisyfirlýsingar fyrir malbik

Verkís kom að gerð umhverfisyfirlýsinga fyrir tvær malbikstegundir Malbikunarstöðvarinnar Höfða, Hylit 11 og Hylit 16.

Verkefnið fól í sér lífsferilsgreiningu á vörunum, gerð og uppsetningu EPD-yfirlýsinga ásamt samskiptum við óháðan vottunaraðila.



Yfirlit verkefnis

Verkís hafði umsjón með ferlinu frá upphafi til enda í nánu samstarfi við Malbikunarstöðina Höfða. Um er að ræða heitblandaðar malbikstegundir sem innihalda steinefni, bik og önnur íblöndunarefni ásamt 10–20% endurunnu malbiki.

Verkís framkvæmdi lífsferilsgreiningar (LCA) fyrir báðar vörurnar, tryggði að viðeigandi kröfum og stöðlum væri fylgt, sá um gerð og uppsetningu EPD-yfirlýsinganna og annaðist samskipti við vottunaraðila þar til útgáfuferlinu lauk.

EPD-yfirlýsingarnar hafa verið yfirfarnar og staðfestar af óháðum þriðja aðila og eru aðgengilegar á EPD Hub. Þær veita hönnuðum, verkkaupum og öðrum hagaðilum staðlaðar og gagnsæjar upplýsingar um umhverfisáhrif malbikstegundanna yfir lífsferil þeirra.

2

EPD-yfirlýsingar



2

Lífsferilsgreiningar



20%
Endurunnið malbik

Áskorunin

Aukin áhersla á umhverfisáhrif byggingarvara og kröfur um gagnsæjar og samanburðarhæfar upplýsingar kalla á vandaða og staðlaða greiningu á umhverfisáhrifum. Fyrir Hylit 11 og Hylit 16 þurfti að greina lífsferil vöranna, tryggja samræmi við viðeigandi alþjóðlega staðla og undirbúa gögn fyrir óháða yfirferð og vottun.

Lausnin okkar

Verkís stýrði öllu EPD-ferlinu í samstarfi við Malbikunarstöðina Höfða. Verkefnið fól í sér gagnasöfnun, lífsferilsgreiningu (LCA), úrvinnslu og framsetningu niðurstaðna, gerð EPD-yfirlýsinga og samskipti við óháðan vottunaraðila. Verkís tryggði jafnframt að unnið væri samkvæmt viðeigandi stöðlum og kröfum.

Niðurstaðan

Tvær vottaðar umhverfisyfirlýsingar fyrir Hylit 11 og Hylit 16 eru nú aðgengilegar á EPD Hub. Með þeim liggja fyrir staðlaðar og gagnsæjar upplýsingar um umhverfisáhrif vöranna sem geta nýst við hönnun, innkaup og ákvarðanatöku í byggingar- og mannvirkjagerð.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Höfði, Ísland


Stærð:


10-20% endurunnið malbik


Verktími:


2026


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið