Skip to content

Verkefni

Leirvogstunga/ Tungumelar

Um var að ræða hönnun mislægra gatnamóta. 

Á vegamótum Hringvegar og tengibrauta við byggð í Leirvogstungu og athafnasvæði á Tungumelum.



Yfirlit verkefnis

Markmið framkvæmdarinnar var að auka öryggi vegfarenda á vegamótum Hringvegar og að tryggja að vegamótin anni þeirri umferð sem væntanleg var frá hinum nýbyggðu hverfum beggja vegna Hringvegar. Markmið um að auka umferðaröryggi vegamótanna voru í samræmi við yfirlýst markmið ríkis og sveitarfélaga um bætt umferðaröryggi.

Framkvæmdin fól í sér breytingu á plan- og hæðarlegu Hringvegar á þeim stað sem vegamótin voru reist ásamt byggingu hringtorgs á brú yfir Hringveg. Við lækkun Hringvegarins jukust sjónlengdir á veginum og góð skermun fyrir umferðarhávaða frá Hringvegi vegna nærliggjandi byggðar náðist fram.

Verkís annaðist gatna- og stígahönnun, frárennslislagnir, hitalagnir, vatnslagnir, hljóðvist og gerð útboðs- og verklýsinga.

Áskorunin

Markmið verkefnisins var að auka umferðaröryggi á vegamótum Hringvegar og tryggja að gatnamótin réðu við aukna umferð frá nýjum hverfum í Leirvogstungu og athafnasvæðinu á Tungumelum. Jafnframt þurfti að bæta sjónlengdir og draga úr umferðarhávaða fyrir nærliggjandi byggð.

Lausnin okkar

Hringvegurinn var lækkaður og breytingar gerðar á plan- og hæðarlegu vegarins. Hringtorg var byggt á brú yfir Hringveginn og með lækkun vegarins jukust sjónlengdir. Jafnframt náðist góð skermun fyrir umferðarhávaða frá Hringveginum.

Niðurstaðan

Mislægu gatnamótin bæta umferðaröryggi og afkastagetu gatnamótanna og tryggja betri tengingu við uppbyggingu í Leirvogstungu og á Tungumelum. Auk þess bættust sjónlengdir og hljóðvist fyrir nærliggjandi byggð.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Mosfellsbær


Verktími:


2007







Heimsmarkmið