Verkefni
Úrbætur á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu
Verkís leiðir hönnun umfangsmikilla úrbóta á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í Reykjavík, með það að markmiði að auka öryggi allra vegfarenda og bæta umferðarflæði.
Gatnamótin hafa um árabil verið meðal hættulegustu gatnamóta landsins og verkefnið er unnið í samstarfi Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar. Áhersla er lögð á skýrara umferðarskipulag, bætta yfirsýn og aukna vernd gangandi og hjólandi vegfarenda.



