Skip to content

Verkefni

Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur og auka umferðaröryggi vegfaranda.

Á stærstum hluta verður veginum breytt í 2+1 veg.



Yfirlit verkefnis

Jafnframt verða gerð þrjú hringtorg, vegtengingum fækkað og lagðir hringvegir.

Um er að ræða breikkun Hringvegar (1) á um níu kílómetra kafla, þrjú hringtorg á Hringveginum, um tólf kílómetra af hliðarvegum (bæði nýir og uppfærðir núverandi vegir), fimm undirgöng (þrjú stálgöng og tvö steypt), tvö mannvirki yfir á (annars vegar lenging og hins vegar breikkun) og um 3,4 km af hjóla- og göngustígum.

Lengi hefur verið kallað eftir breikkun Vesturlandsvegar enda hafa þarna orðið mörg alvarleg slys. Íbúar á Kjalarnesi og sveitarstjórnafólk á Vesturlandi hafa margoft ályktað um nauðsyn tvöföldunar vegarins.

Verkið var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu. Sex verkfræðistofur voru hæfir bjóðendur og átti Verkís lægsta boðið. Vegagerðin er verkkaupi verkefnisins. 

Verkhönnun lauk árið 2020. 

9km

Breikkun Hringvegarins



3

Ný hringtorg



3,4km

Nýir hjóla- og göngustígar

Áskorunin

Vesturlandsvegur um Kjalarnes hefur lengi verið talinn ófullnægjandi með tilliti til umferðaröryggis og hafa orðið þar mörg alvarleg slys. Markmiðið var að bæta samgöngur og auka öryggi vegfarenda á sama tíma og tryggja þarf góðar tengingar við nærliggjandi vegi og þjónustu.

Lausnin okkar

Verkís annaðist verkhönnun umfangsmikilla samgöngubóta á um níu kílómetra kafla Hringvegarins. Stærstum hluta vegarins er breytt í 2+1 veg og jafnframt eru hönnuð þrjú hringtorg, nýjar og uppfærðar hliðarvegatengingar, fimm undirgöng, tvö mannvirki yfir ár og 3,4 km af hjóla- og göngustígum.

Niðurstaðan

Framkvæmdin mun bæta umferðaröryggi og greiða fyrir umferð um Kjalarnes. Með 2+1 vegi, færri vegtengingum, nýjum hringtorgum og bættum aðstæðum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verður samgöngukerfið öruggara og skilvirkara.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Kjalarnes, Reykjavík


Stærð:


9 km


Verktími:


2019 – 2025






Heimsmarkmið