Skip to content

Verkefni

Vaðalda vindorkuver

Vaðalda vindorkuver markar tímamót í orkuskiptum á Íslandi sem fyrsta vindorkuver landsins í stórum viðskiptalegum skala.

Vindorkuverið er staðsett austan Þjórsár og sunnan Sultartangastíflu á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Alls verða 28 vindmyllur reistar á svæðinu þegar framkvæmdum lýkur árið 2027. Landsvirkjun er eigandi og framkvæmdaraðili verkefnisins.



Yfirlit verkefnis

Fyrsti áfangi verkefnisins, sem samanstendur af 14 vindmyllum, var formlega gangsettur í september 2026. Vaðölduver verður hluti af fjölbreyttu safni endurnýjanlegra orkukosta Landsvirkjunar og mun vinna samhliða vatnsaflsvirkjunum á svæðinu.

Verkís hefur komið að verkefninu með fjölbreyttum hætti frá fyrstu undirbúningi til gangsetningar. Aðkoma Verkís hefur meðal annars falist í hönnun og útboðsgagnagerð fyrir innviði vindorkuversins, auk verkfræðiráðgjafar á fjölmörgum sviðum.

Verkís annaðist meðal annars hönnun og útboðsgagnagerð fyrir:

  • vegi og innviði innan framkvæmdasvæðisins
  • plön og kranastæði við vindmyllur
  • undirstöður vindmyllanna í samstarfi við Rambøll
  • safnstöð í Vaðöldu
  • rafbúnað í safnstöð
  • háspennu- og fjarskiptastrengi innan svæðisins
  • úrbætur á vegakerfi vegna flutninga vindmylluhluta frá Þorlákshöfn að Vaðöldu
  • þjónustuhús fyrir rekstur vindorkuversins á Hellu

Verkís kom einnig að jarðfræðirannsóknum á svæðinu í upphafi verkefnis og að prófunum og gangsetningu vindmyllanna.

Verkefnið hefur kallað á náið samstarf fjölmargra sérfræðinga innan Verkís, meðal annars á sviði vegagerðar, jarðtækni, rafmagns- og stjórnkerfa, burðarvirkja og verkefnastjórnunar.

28

Vindmyllur



130km

Flutningsleið



250m

Hámarkslengd flutningalestar

Áskorunin

Vaðölduver er fyrsta vindorkuver Íslands og verkefnið fól í sér umfangsmikla uppbyggingu innviða og flutning stórra og þungra vindmylluhluta eftir um 130 km leið frá Þorlákshöfn að framkvæmdasvæðinu.

Til að mæta kröfum verkefnisins þurfti meðal annars að greina og aðlaga flutningsleiðina, breikka vegi, breyta gatnamótum og færa til innviði meðfram vegum. Jafnframt þurfti að hanna nauðsynlega innviði innan framkvæmdasvæðisins og tryggja að þeir uppfylltu kröfur vegna uppsetningar og reksturs vindorkuversins.

Lausnin okkar

Verkís veitti þverfaglega verkfræðiráðgjöf fyrir verkefnið og kom að hönnun og undirbúningi fjölmargra lykilþátta þess.

Aðkoman náði meðal annars til vega og innviða, planka og kranastæða, undirstaða vindmylla, safnstöðvar, rafbúnaðar, háspennu- og fjarskiptastrengja auk nauðsynlegra úrbóta á flutningsleiðinni.

Í tengslum við flutning vindmylluhlutanna kom Verkís einnig að undirbúningi og úttektum á vegakerfinu. Álagsprófun var framkvæmd á Þjórsárbrú í samstarfi við Vegagerðina og Landsvirkjun til að staðfesta forsendur um burðarþol brúarinnar og öryggi vegna þungaflutninganna.

Samhliða uppbyggingu vindorkuversins hannaði Verkís nýtt þjónustuhús Landsvirkjunar á Hellu. Húsið verður Svansvottað og mun styðja við rekstur og viðhald vindorkuversins, meðal annars með aðstöðu fyrir Landsvirkjun og Enercon.

Niðurstaðan

Fyrsti áfangi Vaðölduvers, með 14 vindmyllum, var gangsettur í september 2026 og markar það tímamót í íslenskri orkuframleiðslu. Þegar framkvæmdum lýkur árið 2027 verða alls 28 vindmyllur í Vaðölduveri.

Verkefnið sýnir hvernig þverfagleg verkfræðiþekking getur stutt við uppbyggingu nýrra endurnýjanlegra orkukosta og hvernig vindorka getur unnið samhliða vatnsafli sem hluti af fjölbreyttara og sveigjanlegra orkukerfi.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Vaðalda


Stærð:


28 vindmyllur


Verktími:


2025 –





Skoðaðu verkefnin okkar

Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.



Heimsmarkmið