Skip to content

Verkefni

Svartárvirkjun

SSB Orka vinnur að undirbúningi allt að 9,8 MW vatnsaflsvirkjunar í Svartá í Bárðardal ásamt lagningu rafstrengs.

Verkís vann að mati á umhverfisáhrifum Svartárvirkjunar fyrir SSB Orku.



Yfirlit verkefnis

Svartárvirkjun fellur undir lög nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, samkvæmt 6. gr. og lið 3.22 í 1. viðauka laganna. Rafstrengurinn fellur undir lið 10.21 í 1. viðauka.

Skipulagsstofnun ákvað þann 18. febrúar 2016 að virkjunin skyldi háð mati á umhverfisáhrifum. Ákvörðun stofnunarinnar um tillögu að matsáætlun lá fyrir 6. september 2016.

Frummatsskýrsla var send Skipulagsstofnun í september 2017 og kynningar- og athugasemdaferli vegna hennar lauk 23. október 2017.

9,8Mw

Uppsett afl





Áskorunin

Að meta möguleg umhverfisáhrif allt að 9,8 MW vatnsaflsvirkjunar og tengdra raforkumannvirkja í náttúrulegu og viðkvæmu umhverfi. Jafnframt þurfti að tryggja að verkefnið uppfyllti kröfur íslenskra laga um mat á umhverfisáhrifum og að sjónarmið hagsmunaaðila kæmu fram í opnu matsferli.

Lausnin okkar

Verkís vann að mati á umhverfisáhrifum Svartárvirkjunar fyrir SSB Orku og útbjó nauðsynleg gögn fyrir skipulags- og leyfisferlið. Unnið var að umhverfisgreiningu, mati á áhrifum framkvæmdarinnar og gerð matsskýrslna í samræmi við íslenska umhverfislöggjöf.

Niðurstaðan

Umhverfismatið lagði traustan grundvöll að yfirferð stjórnvalda og frekari þróun verkefnisins. Með kerfisbundnu og faglegu matsferli var hægt að greina helstu umhverfisþætti og mögulegar mótvægisaðgerðir snemma í ferlinu og styðja þannig við upplýsta ákvarðanatöku um uppbyggingu endurnýjanlegrar orku.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Bárðaland


Stærð:


9,8 megavött


Verktími:


2017 –


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið