Verkefni
Fossárvirkjun er í Engidal, sem gengur inn úr Skutulsfirði á Vestfjörðum.
Virkjunin var fyrst tekin í notkun árið 1937. Þá var fallhæðin 302 metrar og árleg orkuframleiðsla um 3,5 GWh.
Verkefni
Fossárvirkjun er í Engidal, sem gengur inn úr Skutulsfirði á Vestfjörðum.
Virkjunin var fyrst tekin í notkun árið 1937. Þá var fallhæðin 302 metrar og árleg orkuframleiðsla um 3,5 GWh.
Virkjunin nýtir vatn úr Fossavatni sem er í um 350 metra hæð yfir sjávarmáli.
Verkís kom að endurbótum á eldri virkjuninni á árunum 2011–2015. Nýtt stöðvarhús var byggt, nýr vél- og rafbúnaður keyptur og aðveitulögn endurnýjuð. Virkjunin var tekin í notkun að nýju árið 2015.
Verkís vann meðal annars að frumhönnun, hagkvæmniathugun, rennslis- og orkureikningum og útboðsgögnum fyrir vélbúnað og endurnýjun þrýstipípu. Verkís hafði einnig umsjón með raf- og stýribúnaði og aðstoðaði verkkaupa við hönnun. Þá vann Verkís deiliskipulag vegna endurnýjunar virkjunarinnar.
Uppsett afl
Hæð Fossavatns yfir sjávarmáli
Fossárvirkjun, sem var upphaflega tekin í notkun árið 1937, þurfti á umfangsmiklum endurbótum að halda til að endurnýja eldri mannvirki og búnað, bæta rekstraröryggi og tryggja áframhaldandi nýtingu vatnsaflsins á svæðinu.
Verkís veitti þverfaglega verkfræðiþjónustu við enduruppbyggingu virkjunarinnar, þar á meðal hagkvæmniathugun, frumhönnun, rennslis- og orkureikninga, deiliskipulag og gerð útboðsgagna. Verkís kom einnig að hönnun og innkaupum á nýjum vél-, raf- og stýribúnaði ásamt endurnýjun þrýstipípu og byggingu nýs stöðvarhúss.
Endurbætt Fossárvirkjun var tekin í notkun árið 2015 og tryggir áreiðanlegri og öflugri nýtingu endurnýjanlegrar orku á Vestfjörðum. Verkefnið lengdi líftíma virkjunarinnar og bætti rekstraröryggi hennar með nútímavæðingu mannvirkja og búnaðar.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Engidalur, Vestfirðir
Stærð:
1,2 megavött
Verktími:
2011 – 2015
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.