Skip to content

Verkefni

Hitaveita Vestmannaeyja

Hitaveitan í Vestmannaeyjum nær til allra íbúa Vestmannaeyja.

Varmadælustöð var tekin í notkun haustið 2018. Hún er staðsett nálægt höfninni og er sjór nýttur sem varmagjafi. Tvöföld hitaveitulögn tengir saman varmadælustöðina og kyndistöð hitaveitunnar.



Yfirlit verkefnis

Varmadælan annar 93% varmaorkuþarfar hitaveitunnar. Með tilkomu varmadælustöðvarinnar er rafmagnsnotkun hitaveitunnar innan við þriðjungur af því sem áður var, þegar hitaveituvatnið var hitað með rafmagni.

Nokkur ártöl úr sögu hitaveitu Vestmannaeyja:

  • 1973 Eldgos í Heimaey
  • 1975 Lagning dreifikerfis hitaveitu hefst
  • 1977 Hraunhitun hefst + 3 megavatta topphitun með olíukatli
  • 1988 Rafskautaketill, 20 megavött, tekinn í notkun ásamt tveimur 7 megavatta olíukötlum til vara
  • 1998 Varmi fyrst nýttur frá sorpbrennslustöð allt að 1,5 megavött
  • 2000 Afgangsvarmi frá fiskimjölsverksmiðjum nýttur
  • 2001 Hitaveita Suðurnesja, nú HS Veitur, og Bæjarveitur Vestmannaeyja (BV) sameinast
  • 2018 Varmadæla, 10,2 megavött, sem nýtir varma úr sjó tekin í notkun.

2017 (fyrir varmadælustöð)
Uppsett varmaafl í rafskautakatli 20 megavött
Varmaorkuþörf 82 gígavattstundir á ári

Orkugjafar:

  • Rafmagn 66 gígavattstundir á ári
  • Afgangsvarmi 12 gígavattstundir á ári
  • Svartolía 3 gígavattstundir á ári

Frá og með 2018 (með varmadælustöð)
Uppsett varmaafl í varmadælu 10 megavött og 20 megavött í rafskautakatli
Varmaorkuþörf 82 gígavattstundir á ári

Orkugjafar:

  • Varmi úr sjó 56 gígavattstundir á ári
  • Rafmagn 26 gígavattstundir á ári (meðtalinn orka í sjódælur og heitavatnsdælur)

Varmadælustöðin – helstu upplýsingar:

  • Árið 2018 fjórar varmadælur, varmaafl 2,6 megavött hver. Rými fyrir fimm einingar.
  • Nýtir 6°C til 12°C heitan sjó, 480 til 600 lítra á sekúndu.
  • Hitar 70 lítra á sekúndu af 34°C heitu bakvatni frá hitaveitu upp í 77°C og skilar því inn í dreifkerfið.
  • Skilar 93% af árlegri varmaþörf hitaveitunnar.
  • Notar um 26% af þeirri raforku sem rafskautakatlar notuðu í beinni hitun.
  • Kældur sjór nýttur í fiskvinnslu.
93%

Varmaorkuþörf hitaveitunnar mætt með varmadælustöðinni



56GWh

Varmi úr sjó á ári



10mw

Uppsett varmaafl varmadælustöðvarinnar

Áskorunin

Hitaveita Vestmannaeyja þurfti að mæta mikilli varmaorkuþörf með minni raforkunotkun og finna hagkvæmari og sjálfbærari orkugjafa. Fyrir tilkomu varmadælustöðvarinnar var hitaveituvatn að stórum hluta hitað með rafmagni, sem kallaði á mikla raforkunotkun.

Lausnin okkar

Varmadælustöð var tekin í notkun árið 2018 og nýtir sjó sem varmagjafa. Fjögur varmadælueiningar, hver með 2,6 MW varmaafl, nýta sjó við 6–12°C til að hita bakvatn hitaveitunnar úr 34°C í 77°C.

Varmadælustöðin er tengd kyndistöð hitaveitunnar með tvöfaldri hitaveitulögn og kældi sjórinn er jafnframt nýttur í fiskvinnslu.

Niðurstaðan

Varmadælustöðin annar um 93% af árlegri varmaorkuþörf hitaveitunnar og hefur gjörbreytt orkuskiptingu hitaveitunnar. Varmi úr sjó stendur nú undir um 56 GWh á ári, en raforkunotkun til hitunar hefur minnkað verulega.

Með nýtingu sjávar sem varmagjafa hefur Vestmannaeyjum tekist að draga úr raforkunotkun hitaveitunnar og auka nýtingu endurnýjanlegrar og staðbundinnar orku.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Vestmannaeyjar


Stærð:


20 megavött


Verktími:


1973 – 2018






Heimsmarkmið