Verkefni
Akureyri er ört vaxandi bær og samhliða því eykst þörfin fyrir heitt vatn mikið.
Frekari leit eftir heitu vatni hefur staðið yfir um árabil og víðtækar rannsóknir verið gerðar á undanförnum árum.
Verkefni
Akureyri er ört vaxandi bær og samhliða því eykst þörfin fyrir heitt vatn mikið.
Frekari leit eftir heitu vatni hefur staðið yfir um árabil og víðtækar rannsóknir verið gerðar á undanförnum árum.
Verkís kom að hönnun nýrrar 20,5 km langrar aðveituæðar sem tengir Hjalteyri við hitaveitukerfi Akureyrar. Nýja stofnæðin er DN500 og var lögð til að styrkja heitavatnsöflun bæjarins og mæta aukinni eftirspurn eftir heitu vatni í ört vaxandi samfélagi.
Verkefnið var unnið fyrir Norðurorku og skiptist í fjóra framkvæmdaáfanga, frá Hjalteyri að Akureyri. Verkís sá um frumhönnun allrar æðarinnar, verkhönnun þriggja áfanga og útboð á lagnaefni.
Við hönnunina þurfti meðal annars að taka mið af flóknum aðstæðum í þéttbýli, þverun áa og vegakerfis og tengingu nýju stofnæðarinnar við núverandi dreifikerfi hitaveitunnar. Með framkvæmdinni er hitaveitukerfið styrkt til framtíðar og skapað aukið svigrúm til að mæta vaxandi heitavatnsþörf Akureyrar.
Fjarlægð Hjalteyrar frá Akureyri
Þvermál nýrrar stofnlagnar
Akureyri hefur vaxið hratt og á árunum 2000–2020 tvöfaldaðist orkuþörf hitaveitunnar. Á köldustu vetrardögum hafði hitaveitan þurft að starfa á fullum afköstum og lítið mátti út af bregða í rekstrinum.
Jafnframt voru takmarkanir á helstu núverandi heitavatnssvæðum í nágrenni Akureyrar. Því var þörf á að styrkja hitaveitukerfið og tryggja nægilegt framboð af heitu vatni til framtíðar.
Verkís sá um frumhönnun nýrrar 20,5 km langrar aðveituæðar frá Hjalteyri til Akureyrar og verkhönnun þriggja áfanga verkefnisins, auk útboðs á lagnaefni.
Nýja stofnæðin er DN500 og liggur frá Hjalteyri að gatnamótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis þar sem hún tengist öflugum stofnæðum dreifikerfis hitaveitunnar.
Verkefninu var skipt í fjóra áfanga, þar á meðal 1,6 km stofnlögn innanbæjar, 6,4 km frá Hjalteyri að Ósi, 7,5 km frá Ósi að Skjaldarvík og um 5 km frá Skjaldarvík að Akureyri. Sérstaklega var horft til áskorana við þverun Glerár og Hörgár og tímasetningar framkvæmda lagaðar að vatnsrennsli og umhverfisaðstæðum.
Ný 20,5 km aðveita styrkir verulega hitaveitukerfi Akureyrar og eykur afhendingaröryggi fyrir ört vaxandi bæ.
Með nýju stofnæðinni getur Norðurorka nýtt aukið magn af heitu vatni frá Hjalteyri og mætt vaxandi eftirspurn án þess að hitaveitan þurfi að reiða sig jafn mikið á hámarksafköst kerfisins á köldustu dögum.
Verkefnið er mikilvægt skref í að framtíðartryggja heitavatnsöflun Akureyrar og styðja við áframhaldandi vöxt bæjarins.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Norðurland
Stærð:
20,5 kílómetrar
Verktími:
2017- 2025
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.