Skip to content

Verkefni

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Verkís sér um fullnaðarhönnun nýs húsnæðis Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Samþætts kennslu- og rannsóknarumhverfis í hjarta Hringbrautarreitsins.



Yfirlit verkefnis

Verkís sér um fullnaðarhönnun nýrrar fimm hæða byggingar fyrir Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands á lóð Landspítala Háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Nýbyggingin tengist núverandi Læknagarði og tilteknum nýbyggingum Landspítala og verður þannig hluti af stærra og samþættu háskóla- og heilbrigðisumhverfi á svæðinu.

Markmið verkefnisins er að sameina starfsemi Heilbrigðisvísindasviðs á einum stað og skapa nútímalegt húsnæði sem styður við kennslu, rannsóknir og fjölbreytta starfsemi sviðsins. Jafnframt verða gerðar endurbætur á Læknagarði til að styrkja tengsl núverandi og nýs húsnæðis.

Nýja húsnæðið verður sérhannað með þarfir Heilbrigðisvísindasviðs að leiðarljósi og lögð áhersla á góða kennslu- og rannsóknaraðstöðu, samnýtingu rýma og sveigjanleika til framtíðar. Með uppbyggingunni verður starfsemi sviðsins færð í nútímalegt og vistvænt húsnæði sem tekur mið af breyttum þörfum kennslu og rannsókna.

Verkefnið er unnið með BIM-aðferðafræði sem styður við samþættingu hönnunar og samhæfingu ólíkra hönnunarþátta. Jafnframt er lögð áhersla á umhverfisvæna nálgun og stefnt að BREEAM-vistvottun nýbyggingarinnar.

20000m²

Heildarstærð verkefnis



11300m²

Nýbygging



5

Hæðir

Áskorunin

Verkefnið felur í sér að skapa nýtt og sveigjanlegt húsnæði fyrir fjölbreytta kennslu- og rannsóknarstarfsemi og samtímis tengja nýbygginguna við núverandi Læknagarð og aðrar byggingar á Hringbrautarreitnum.

Lausnin okkar

Verkís sér um fullnaðarhönnun nýbyggingarinnar og kemur jafnframt að endurbótum á Læknagarði. Hönnunin er unnin í BIM og tekur mið af þörfum Heilbrigðisvísindasviðs, með áherslu á samnýtingu, sveigjanleika og samþættingu kennslu- og rannsóknarstarfsemi.

Umhverfisáherslur eru hluti af verkefninu frá upphafi og er stefnt að BREEAM-vistvottun nýbyggingarinnar.

Niðurstaðan

Nýbyggingin mun skapa sameiginlegt og nútímalegt umhverfi fyrir starfsemi Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og styrkja tengsl kennslu, rannsókna og heilbrigðisþjónustu á Hringbrautarreitnum. Með samþættri hönnun, BIM-aðferðafræði og áherslu á umhverfisvænar lausnir er lögð áhersla á sveigjanlegt húsnæði sem getur mætt þörfum starfseminnar til framtíðar.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Reykjavík – Hringbrautarreitur


Stærð:


20.000 m²


Verktími:


2022 –


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið