Yfirlit verkefnis
Edda – Hús íslenskra fræða stendur við Arngrímsgötu 5 og hýsir starfsemi bæði Árnastofnunar og Háskóla Íslands. Í húsinu eru varðveitt og rannsökuð verðmæt íslensk handrit og þar fer jafnframt fram kennsla og fræðastarf á sviði íslenskra fræða.
Byggingin er á þremur hæðum auk kjallara undir hluta hússins og opins bílakjallara. Form hennar er sporöskjulaga og byggingin er brotin upp með útskotum og innigörðum sem skapa fjölbreytt rými innan hennar. Að utan er húsið klætt opnum málmhjúp sem skreyttur er með mynstrum og myndum tengdum íslenskum handritum.
Húsið var hannað með fjölbreytta starfsemi í huga og inniheldur sérhæfð rými fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á fornum íslenskum skinnhandritum. Þar eru einnig vinnustofur fyrir kennara og fræðimenn, lesrými fyrir nemendur, fyrirlestra- og kennslusalir og bókasafn með lesrými.
Framkvæmdir við húsið hófust sumarið 2019 og lauk vorið 2023. Verkís kom að verkefninu bæði við verkfræðihönnun og á framkvæmdatíma. Verkfræðihönnun, þar á meðal burðarþolshönnun og loftræsi- og lagnahönnun, var unnin á árunum 2008–2013 og 2017–2018.
6500m²
Heildarstærð byggingar
2250m²
Stærð bílakjallara
Áskorunin
Hönnun hússins þurfti að taka mið af fjölbreyttri og sérhæfðri starfsemi, allt frá varðveislu viðkvæmra sögulegra heimilda til rannsókna, kennslu og sýningarhalds. Jafnframt þurfti að samþætta sérhæfð rými og tæknikerfi við sérstakt byggingarform og arkitektúr hússins.
Lausnin okkar
Verkís kom að verkfræðihönnun verkefnisins, þar á meðal burðarþolshönnun og hönnun loftræsi- og lagnakerfa. Hönnunin tók mið af ólíkum þörfum starfseminnar og sérhæfðum rýmum hússins.
Verkís kom einnig að verkefninu á framkvæmdatíma með aðstoð og ráðgjöf við framkvæmdina.
Niðurstaðan
Edda – Hús íslenskra fræða sameinar varðveislu íslenskrar menningararfleifðar við rannsóknir, kennslu og miðlun. Sérhæfð aðstaða hússins styður við starfsemi Árnastofnunar og Háskóla Íslands og skapar umgjörð fyrir varðveislu og rannsóknir á íslenskum handritum og fræðastarf um íslenska tungu og menningu.