Aðeins það besta
Í verkefnum sem snúa að hönnun mannvirkja og skipulagi lands eru mælingar og kortagerð í upphafi verks forsenda þess að vel takist til með framkvæmdir. Áreiðanlegar upplýsingar eru lykill að góðri lausn.
Meðal þjónustu sem Verkís býður upp á eru land-, grunnvatns- og mengunarmælingar, mannvirkja- eftirlits- og náttúrufarsmælingar, jarðfræðikortlagning og magntaka. Þá sinnum við hljóðvist og innmælingum, bæði utan húss og innan. Við gerum þrívíddarlíkön af mannvirkjum og landi og vinnum þemakort, skipulagsuppdrætti og uppbyggingu gagnagrunna.
Sérfræðingar fyrirtækisins hafa til umráða öll þau mælitæki og annan búnað sem krafist er við úrlausn einstakra verkefna. Mælingar eru órjúfanlegur partur af hvers kyns framkvæmdum og kappkosta sérfræðingar okkar að bjóða viðskiptavinum okkar upp á bestu mögulegu þjónustu með þeirri tækni og aðferðum sem eru viðurkenndar og í fremstu röð.
Sérfræðingar Verkís taka vel á móti viðskiptavinum sínum og sinna öllum verkefnum í mælingum og kortagerð af kostgæfni.