Við trúum á góð samskipti
Einnig má nefna afsogskerfi til að mæta útstreymi lofttegunda og ryki í iðnaðarferlum og kælikerfi fyrir bæði vélar og rými. Auk þess veitir fyrirtækið ráðgjöf um kerfi til mælingar og vöktunar á losun frá stórum og smáum iðnfyrirtækjum.
Fyrirtækið býður jafnframt þjónustu sérfræðinga við val á búnaði til lofthreinsunar og lyktareyðingar í samræmi við kröfur í starfsleyfi viðkomandi fyrirtækis. Hönnun á almennum og sérhæfðum loftræsi- og loftkælikerfum er einnig hluti af þjónustu orku- og iðnaðarsviðs.
Meðal verkefna sem Verkís hefur komið að á þessu sviði eru Stapaskóli, Gagnaver Etix á Blönduósi, álverið í Straumsvík, Norðurál Grundartanga og kísilverksmiðjan í Helguvík.
Við leggjum metnað okkar í að finna bestu og hagkvæmustu lausnina hverju sinni og leggjum mikið upp úr því að samskipti og samvinna á verkstað séu skýr. Þannig tryggjum við velgengni hvers verkefnis.
Þjónusta
- Iðnaðarloftræsing, innivist og ryk afsog
- Þarfagreining, umhverfi og bætt heilsa
- Hönnun, útboðsgögn og mæling losunar
- Ráðgjöf varðandi búnað og hreinsun útstreymis
- Eftirlit með uppsetningu og lyktareyðing