Skip to content

Þjónusta

BIM

BIM aðferðafræði nýtist á líftíma mannvirkis, allt frá hönnun til verklegra framkvæmda, reksturs og viðhalds.

Verkís hefur sett sér markmið um að vera leiðandi ráðgjafarfyrirtæki í BIM á Íslandi sem getur veitt vandaða, faglega og framsækna BIM ráðgjöf.



Framsækin hönnun og ráðgjöf

Verkís veitir ráðgjöf á alþjóðlegum mælikvarða ásamt því að vera virkur þátttakandi í faglegu starfi á sviði BIM aðferðafræði og BIM þróunar á Íslandi. Verkís hefur komið að mörgum BIM verkefnum bæði á Íslandi og erlendis.

Verkís hefur tileinkað sér BIM í mannvirkjahönnun á öllum stigum líftíma mannvirkis. Verkís kemur að BIM stefnumótun, þróun og skilgreiningum á kröfum viðskiptavina út frá þörfum starfseminnar hverju sinni. Með því að hafa skýrar kröfur má velja viðeigandi BIM aðgerðir sem styðja við kröfur viðskiptavina og tryggja að upplýsingar verða til á réttum stað og á réttum tíma.

Vel útfært og skipulagt verkefni í BIM skilar gríðarlegum ávinning fyrir viðskiptavin sem skilar sér í betur samræmdu mannvirki, góðum samskiptum yfir tíma verkefnis, sameiginlegan skilning á væntingum, skilvirkum ákvarðanatökum, betri gæðum og lægri framkvæmdakostnað.

BIM í mannvirkjagerð er stórt og flókið viðfangsefni. Verkís brýtur það niður í viðráðanlega og skýra þjónustuþætti með áherslu á einfaldleika, notagildi og jákvæða upplifun viðskiptavina.

BIM Stefnumótun

  • Innleiðing BIM innan fyrirtækja, skilgreining BIM Ferla og þarfagreining
  • Þróun mælaborða og val á frammistöðuvísum
  • Ráðgjöf varðandi flokkunarkerfi
  • Gerð EIR skýrslu (Exchange Information Requirement)
  • Gerð forsniða að BEP skýrslu (BIM Execution Plan)
  • „Kóðun“ dRofus osfrv

BIM Stjórnun í hönnun og framkvæmd

  • Gerð BEP skýrslu (BIM Execution Plan)
  • Stjórnun BIM samræmingarfunda
  • Rekstur CDE umhverfa (ACC, Trimble Connect)
  • Árekstrargreining og samræming líkana
  • Heilsu- og gæðaeftirlit líkana
  • Rýni líkana m.t.t framkvæmanleika
  • „Kóðun“ líkana og tenging við gagnagrunna verkkaupa

BIM í hönnun

  • 3D líkanagerð skv. BIM kröfum verkefna
  • Skönnun í BIM – Skönnunargögn tekin og skilað sem BIM líkan
  • Gerð deiliteikninga til notkunar í framkvæmd byggt á BIM líkani
  • Framleiðsla á Revit fjölskyldum og CAD snjallblokkum
  • Sérsniðnir sjálfvirkniferlar
  • Sérsniðnar skriptur í Dynamo og grasshopper til að auka skilvirkni

BIM Áætlanagerð og sértæk þjónusta

  • Samþætting verkáætlana og BIM líkana með tilliti til tíma (4D)
  • Samþætting kostnaðaráætlana, verkáætlana og BIM líkana með tilliti til tíma (5D
  • Samþætting líkana við sjálfbærniþætti
    • Líkan gert nothæft til orkuútreikninga
    • Líkan gert nothæft til birtuútreikninga
    • Líkan gert nothæft til að fylgjast með kolefnislosun
  • Uppsetning sjálfvirkra mælaborða

BIM í rekstri

  • Gerð stafræns tvíbura bygginga
  • Skönnun núverandi bygginga

Verkefni




Tengiliðir

Andri Martin Sigurðsson
Byggingartæknifræðingur / Hópstjóri
Svið: Byggingar
ams@verkis.is

Ólafur Daníel Jónsson
Leiðtogi stafrænnar hönnunar
Svið: Þróun
odj@verkis.is

Ragnar Steinn Clausen
Byggingarverkfræðingur / Viðskiptastjóri
Svið: Samgöngur og umhverfi
rsc@verkis.is