Skip to content
05/11/2026

Vinnustofa um orkuskipti á sjó haldin hjá Verkís

Hilmar Stefánsson, Jón Björn Skúlason, Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, Sverrir Jan Norðfjörð, Árni Sigurbjarnarsson
Hilmar Stefánsson, Jón Björn Skúlason, Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, Sverrir Jan Norðfjörð, Árni Sigurbjarnarsson

ORKIS hélt vinnustofuna Rafmagn og rafeldsneyti á sjó í húsnæði Verkís í Ofanleiti 2 þann 5. nóvember. Þar komu saman fulltrúar úr sjávarútvegi, samgöngum og hafnarstarfsemi til að fjalla um orkuskipti á sjó, nýja tækni og framtíðarmöguleika í rafvæðingu skipa.

Carine Chatenay, viðskiptastjóri á orkusviði hjá Verkís, opnaði fundinn með kynningu á evrópska nýsköpunarverkefninu WHISPER. Verkefnið miðar að því að þróa og prófa tæknilausnir sem nýta vind- og sólarorku til að draga úr eldsneytisnotkun og losun frá flutningaskipum. Verkís leiðir alþjóðlegt samstarf verkefnisins og kemur meðal annars að tæknilegri verkefnastjórnun og samþættingu lausna.

Við húsnæði Verkís var jafnframt til sýnis gámur frá Sidewind sem smíðaður var fyrir WHISPER-verkefnið. Gámurinn vakti athygli og gaf gestum tækifæri til að sjá hluta af þeirri tækniþróun sem verkefnið snýst um.

Gámurinn frá Sidewind við húsnæði Verkís.

Á dagskrá vinnustofunnar voru einnig erindi frá fulltrúum frá Samskip, Vegagerðinni, Faxaflóahöfnum og Brimexplorer. Laurens Dourleijn frá Samskip fjallaði um áform um kolefnislausa siglingaleið milli Oslóar og Rotterdam árið 2027. Hilmar Stefánsson frá Vegagerðinni kynnti reynslu af rafmögnun Herjólfs og Gyða Mjöll Ingólfsdóttir frá Faxaflóahöfnum fjallaði um uppbyggingu rafinnviða við Faxaflóahafnir og orkuskipti skipa. Árni Sigurbjarnarson frá Brimexplorer fjallaði um ferðaþjónustu og losunarfría báta, nýja tækni og ný tækifæri á því sviði.

Að erindum loknum fór fram pallborðsumræða undir stjórn Jóns Björns Skúlasonar. Þar var meðal annars rætt um hindranir í innleiðingu hreinnar orku í skipum. Fundarstjóri var Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri ORKIS.

Vinnustofan skapaði vettvang fyrir miðlun þekkingar og umræðu um þær tæknilegu lausnir og innviði sem þurfa að vera til staðar til að styðja við orkuskipti á sjó.

🔗 Nánar um WHISPER-verkefnið: WHISPER – vind- og sólarlausnir fyrir kolefnislosun í sjóflutningum

Heimsmarkmið

Hilmar Stefánsson, Jón Björn Skúlason, Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, Sverrir Jan Norðfjörð, Árni Sigurbjarnarsson
Hilmar Stefánsson, Jón Björn Skúlason, Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, Sverrir Jan Norðfjörð, Árni Sigurbjarnarsson

Deila þessari færslu