Skip to content
30/09/2026

Verkís tekur þátt í undirbúningi stækkunar Qorlortorsuaq-virkjunar á Grænlandi

Qorlortorsuaq virkjun

Verkís hefur, í samstarfi við NTU International A/S, verið falið að vinna að undirbúningi stækkunar Qorlortorsuaq-vatnsaflsvirkjunar á Suður-Grænlandi. Verkís verður aðaltækniráðgjafi verkefnisins, sem miðar að því að auka raforkuframleiðslu úr endurnýjanlegum orkugjöfum og styrkja orkuöryggi á svæðinu.

Qorlortorsuaq-virkjun sér bæjunum Qaqortoq og Narsaq á Suður-Grænlandi fyrir raforku, en þar búa samtals um 4.300 manns. Núverandi virkjun annar ekki að fullu raforkuþörf bæjanna og því þarf að nýta dísilrafstöðvar samhliða henni hluta ársins. Fyrirhuguð stækkun miðar að því að auka framboð endurnýjanlegrar raforku og draga úr þörf fyrir jarðefnaeldsneyti.

Unnið verður í nánu samstarfi við Naalakkersuisut, ríkisstjórn Grænlands, orkufyrirtækið Nukissiorfiit og skrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Grænlandi. Verkefnið mun leggja grunn að ákvörðunum um stækkun virkjunarinnar og undirbúningi útboða og framkvæmda.

Meðal helstu verkþátta eru:

  • Yfirferð fyrri rannsókna og viðbótarvettvangsrannsóknir og tæknilegar athuganir.
  • Samanburður á útfærslum stíflna og jarðganga, ásamt lausnum fyrir vatnsveitingar, setstjórnun og flóðavarnir.
  • Uppfærsla vatnafræðilíkana með tilliti til jökulbráðnunar, setflutninga og langtímaþróunar vatnsframboðs.
  • Endurskoðun frumhönnunar, ásamt gerð tækniteikninga, verklýsinga og kostnaðaráætlana.
  • Mat á umhverfis- og samfélagsáhrifum og tillögur að mótvægisaðgerðum.

Með fyrirhugaðri stækkun er gert ráð fyrir að auka verulega það vatnsmagn sem nýtist til orkuvinnslu og framleiðslugetu virkjunarinnar. Aukið framboð endurnýjanlegrar raforku mun styðja við samfélög, atvinnulíf og framtíðaruppbyggingu á Suður-Grænlandi.

Verkís þekkir vel til Qorlortorsuaq-virkjunar eftir að hafa sinnt hönnun og verkfræðiráðgjöf fyrir alverktaka við uppbyggingu hennar á árunum 2003–2007. Nýja verkefnið byggir þannig á reynslu og þekkingu fyrirtækisins af virkjuninni og aðstæðum á svæðinu.

Heimsmarkmið

Qorlortorsuaq virkjun

Deila þessari færslu