Vaðölduver gangsett – fyrsta vindorkuver Íslands
Í gær var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver Íslands, formlega gangsett við hátíðlega athöfn á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Fyrsti áfangi verkefnisins samanstendur af 14 vindmyllum en alls verða 28 vindmyllur reistar á svæðinu þegar framkvæmdum lýkur árið 2027. Landsvirkjun er eigandi og framkvæmdaraðili verkefnisins.
Gangsetning Vaðölduvers markar tímamót í sögu íslenskrar orkuframleiðslu. Vindorkuverið er staðsett austan Þjórsár, sunnan Sultartangastíflu, og mun styrkja endurnýjanlegt orkukerfi landsins með því að vinna samhliða vatnsaflsvirkjunum á svæðinu.

Umfangsmikil aðkoma Verkís
Verkís hefur komið að verkefninu á fjölbreyttan hátt frá undirbúningi til gangsetningar og er stolt af því að hafa átt þátt í uppbyggingu fyrsta vindorkuvers landsins.
Aðkoma Verkís var meðal annars hönnun og útboðsgagnagerð fyrir:
- vegi og innviði innan framkvæmdasvæðisins
- plön og kranastæða við vindmyllur
- undirstöður vindmyllanna í samvinnu við Rambøll
- safnstöð í Vaðöldu
- rafbúnað í safnstöð
- háspennu- og fjarskiptastrengi innan svæðisins
- nauðsynlegar úrbætur á vegakerfi vegna flutninga vindmylluhluta frá Þorlákshöfn að Vaðöldu
- þjónustuhús fyrir rekstur vindorkuversins á Hellu
Auk ofangreinds kom Verkís að jarðfræðirannsóknum á svæðinu í upphafi verks og síðast en ekki síst að prófunum og gangsetningu.
Verkefnið hefur kallað á náið samstarf fjölmargra sérfræðinga innan Verkís, meðal annars á sviði vegagerðar, jarðtækni, rafmagns- og stjórnkerfa, burðarvirkja og verkefnastjórnunar.

Tímamót fyrir íslensk orkuskipti
Gangsetning Vaðölduvers er mikilvægur áfangi í þróun íslensks orkukerfis og skref í átt að fjölbreyttari nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Verkefnið sýnir hvernig nýta má samspil vindorku og vatnsafls til að auka sveigjanleika og orkuöryggi.
Verkís óskar Landsvirkjun og öllum samstarfsaðilum innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga og gangsetningu fyrstu vindmyllanna í Vaðölduveri.

