Þjónusta
Flugvellir
Í gegnum áratugina hefur Verkís komið að hönnun og viðhaldi á öllum helstu flugvöllum landsins.
Verkís hefur áratugareynslu í hönnun flugvalla og býður upp á þjónustu þeim tengdum í hæsta gæðaflokki.
Þjónusta
Í gegnum áratugina hefur Verkís komið að hönnun og viðhaldi á öllum helstu flugvöllum landsins.
Verkís hefur áratugareynslu í hönnun flugvalla og býður upp á þjónustu þeim tengdum í hæsta gæðaflokki.
Þjónusta Verkís fyrir flugvelli felst helst í hönnun flugvallamannvirkja á öllum hönnunarstigum, verkefnisstjórn, eftirliti með framkvæmdum, umhverfis- og öryggismálum, skipulagi framkvæmda innan haftasvæða, gerð ástandsmats og viðhaldsáætlana ásamt því að bjóða upp á ýmis konar rekstraraðstoð.
Hjá Verkís vinnu sérhæfður hópur hönnuða í flugvallarverkefnum. Hönnun og ráðgjöf Verkís snýr m.a. að flugstöðvarbyggingum, þjónustubyggingum, flugbrautum, akbrautum, flughlöðum, flugskýlum, rafmagnskerfum, ljósakerfum, veitukerfum og öðrum mannvirkjum. Flugvallar teymið er með fjölbreyttan bakgrunn sem sinnir reglulega verkefnum á flugvöllum og þekkir vel allar helstu reglugerðir og lagaramma sem krafist er að farið sé eftir á flugvöllum.
Verkís hefur öryggi allra notenda flugvalla að leiðarljósi og er eitt það allra mikilvægasta sem huga þarf að þegar kemur að þróun og skipulagningu verkefna. Hvort sem verið er að skipuleggja viðhaldsverkefni eða nýframkvæmdir þarf ávallt að finna lausnir sem miða að því að halda áhrifum framkvæmda á farþega í lágmarki, ásamt því að tryggja ítrasta öryggi allra viðkomandi aðila, svo sem starfsfólks.
Heildarskipulag Flughalla (e. Master Plan)
Landsvæði (e. Landside)
Flugsvæði (e. Airside)
Flughöfn (e. Airport Buildings)
Almenn ráðgjöf

Ragnar Steinn Clausen
Byggingarverkfræðingur / Viðskiptastjóri
Svið: Samgöngur og umhverfi
rsc@verkis.is