Verkefni
Verkís hefur frá upphafi unnið við hönnun á Keflavíkurflugvelli.
Verkís hefur unnið að öllum helstu þáttum við alla byggingaráfanga flugstöðvarinnar.
Verkefni
Verkís hefur frá upphafi unnið við hönnun á Keflavíkurflugvelli.
Verkís hefur unnið að öllum helstu þáttum við alla byggingaráfanga flugstöðvarinnar.
Verkís hefur frá upphafi unnið við hönnun á Keflavíkurflugvelli en norðurbyggingin var vígð í apríl 1987. Flugstöðin var stækkuð með suðurbyggingu sem tekin var í notkun árið 2001. Árið 2004 var ráðist í að stækka norðurbygginguna og voru innritunar- og móttökusalir stækkaðir til vesturs og austurs og þaki hússins lyft og útbúnar skrifstofur á þriðju hæðinni þar sem áður voru aðeins tæknirými.
Norðurbyggingin er á þremur hæðum auk lagna- og tækjakjallara en á svæðinu er einnig um 37.500 fermetra snjóbræðsla. Suðurbyggingin er á tveimur hæðum auk kjallara sem er undir meginhluta hússins og lagnakjallari þar fyrir utan. Farið var í stækkun til vestur á suðurbyggingunni árið 2013.
Árið 2016 var farið í stækkun norðurbyggingar til vesturs, ásamt viðbyggingu norðurbyggingar til suðausturs. Í heild eru viðbyggingarnar um 4.300 fermetrar.
Í vesturstækkuninni er ný vörumóttaka fyrir flugstöðina, starfsmannahlið, stækkun á farangursflokkunarsal, nýtt aðkomuhlið fyrir flugvallarsvæði ásamt geymslum og skrifstofurýmum. Austurstækkunin er byggð ofan á flughlaðið en þar er nýtt færibandakerfi fyrir komufarþega. Verkefnið fól einnig í sér niðurrif á núverandi vörumóttöku. Viðbyggingarnar eru stálgrindarhús klædd með yleiningum. Þar sem viðbyggingarnar eru reistar utan um færibandakerfi þurfti að taka tillit til þeirra við hönnun á byggingum og tæknikerfum.
Stækkun flugstöðvarinnar var unnin samkvæmt BIM aðferðafræðinni.
Verkís hefur unnið að öllum helstu þáttum við alla byggingaráfanga flugstöðvarinnar. En eðli flugstöðvarbyggingar er að hún er í stöðugri þróun og því hefur verið nauðsynlegt að hanna öll kerfi hússins með slíkan sveigjanleika í huga.
Heildarflatarmál viðbygginga
Snjóbræðsla á flugvallarsvæðinu
Byggingaráfangar
Keflavíkurflugvöllur er í stöðugri þróun og stækkun og því þurfti að hanna mannvirki og tæknikerfi sem gætu mætt breyttum þörfum til framtíðar. Sérstök áskorun fólst í því að reisa nýjar byggingar utan um og yfir starfandi færibandakerfi og samþætta þær við núverandi byggingar og innviði flugstöðvarinnar.
Verkís kom að hönnun allra helstu þátta við byggingaráfanga flugstöðvarinnar og lagði áherslu á sveigjanlega hönnun sem tæki mið af áframhaldandi þróun flugvallarins. Við stækkunina árið 2016 var meðal annars hannað nýtt vörumóttökusvæði, starfsmannahlið, farangursflokkunarsalur, aðkomuhlið, geymslur og skrifstofur ásamt nýju færibandakerfi fyrir komufarþega. Verkefnið var unnið samkvæmt BIM-aðferðafræðinni.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Reykjanesbær
Verktími:
1985 –
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.