Skip to content
06/11/2026

Atuarfik Inussuk í Nuuk valin Skólabygging ársins 2026

Atuarfik Inussuk í Nuuk valin Skólabygging ársins 2026

Atuarfik Inussuk, stærsta skólabygging Grænlands, hefur verið valin Skólabygging ársins 2026 af danska fræðslu- og ráðgjafarfyrirtækinu Nohrcon. Skólinn hlaut bæði áhorfendaverðlaunin og verðlaun fagfólks í árlegri kosningu Nohrcon. Þetta er mikil viðurkenning fyrir metnaðarfulla hönnun og samstarf allra sem komu að verkefninu.

Verkís annaðist verkfræðihönnun skólans sem var umfangsmikil og fól í sér alþjóðlegt samstarf við krefjandi aðstæður á Grænlandi. Arkitektúrinn tekur mið af grænlenskri náttúru, landslagi og veðurfari.

Samstarf fjölbreytts sérfræðiteymis

Verkefnið var unnið í nánu samstarfi fjölbreytts teymis sérfræðinga. KHR Architecture sá um arkitektahönnun, Verkís verkfræðihönnun, Ístak var aðalverktaki og Vega Landskab sá um landslagshönnun. Verkefnið var unnið fyrir Kommuneqarfik Sermersooq.

Atuarfik Inussuk er nú í notkun og hefur með þessu hlotið verðskuldaða viðurkenningu fyrir framúrskarandi skólaumhverfi.

Verkís óskar öllum sem komu að verkefninu til hamingju með þennan glæsilega árangur.

🔗Frétt um viðurkenninguna frá Nohrcon á dönsku.

🔗 Sjá nánar um verkefnið.

Heimsmarkmið

Atuarfik Inussuk í Nuuk valin Skólabygging ársins 2026