Nuuk skóli tekinn í notkun
Nýi skólinn Atuarfik Inussuk í Nuuk á Grænlandi hefur verið tekinn í notkun. Verkís annaðist verkfræðihönnun verkefnisins fyrir Ístak, sem var alverktaki við byggingu skólans.
Atuarfik Inussuk er stærsta skólabygging Grænlands og er um 18.000 fermetrar að stærð. Skólinn rúmar allt að 1.200 börn og við hann er einnig sérstök leikskólabygging fyrir um 120 börn. Byggingin samanstendur af sjö samtengdum húsum og er hönnuð með það að markmiði að skapa ekki aðeins góða umgjörð um skólastarf heldur einnig samkomustað fyrir íbúa Nuuk.
Verkís annaðist verkfræðihönnun skólans í nánu samstarfi við Ístak og aðra samstarfsaðila. Umfang verkefnisins og krefjandi aðstæður á Grænlandi gerðu miklar kröfur til hönnunar og tæknilegrar útfærslu.
Framkvæmdir hófust í kjölfar samnings Ístaks við verkkaupa árið 2019. Verkefnið var eitt stærsta verkefni sem Ístak hafði tekið að sér erlendis og eitt umfangsmesta byggingarverkefni íslensks verktakafyrirtækis á alþjóðavettvangi.
Með opnun Atuarfik Inussuk lýkur umfangsmiklu og krefjandi verkefni sem Verkís hefur tekið þátt í frá upphafi og markar mikilvægan áfanga fyrir skólahald og samfélagið í Nuuk.
Sjá nánar um verkefnið: Skóli í Nuuk
