Skip to content

Þjónusta

Mengunarrannsóknir

Einn megintilgangur mengunarrannsókna er að koma í veg fyrir að heilsa fólks og vistkerfisins verði fyrir neikvæðum áhrifum.

Því er mikilvægt að takast snemma á við umhverfismengun.

Fyrirspurn um ráðgjöf


Markvissar rannsóknir gefa skýrari mynd

Eðli málsins samkvæmt geta mengunarrannsóknir verið tímafrekar og kostnaðarsamar. Þeim tíma og kostnaði er þó vel varið þar sem rannsóknirnar geta komið í veg fyrir að óvænt mengunarmál komi upp þegar framkvæmdir eru hafnar. Markvissar mengunarrannsóknir geta því skilað fjárhagslegum ávinningi. Sérfræðingar okkar leitast einnig við að draga úr kostnaði vegna efnagreininga á rannsóknarstofu með hnitmiðuðum mengunarrannsóknum. Við skoðum m.a. sögulegar heimildir og nýtum bæði skynfæri okkar og mæla á vettvangi.

Að mörgu er að huga í upphafi skipulagsferils, til dæmis þegar verið er að breyta landnotkun svæðis. Sérfræðingar Verkís leggja mikla áherslu á að mengunarstaða svæðis sé könnuð strax í byrjun ferilsins, því þær niðurstöður geta haft áhrif á hvernig svæðið er skipulagt m.t.t. misviðkvæmra viðtaka (t.d. hvort um sé að ræða leikskólasvæði, íbúðahús með heimaræktun eða verslunarrými).

Stig mengunarrannsókna hjá Verkís:

Fyrsta stig: Forathugun svæðis (e. Preliminary Site Investigation)
Felst að mestu í heimildaöflun þar sem saga svæðisins m.t.t. mögulegrar mengunar er rakin. Huglægt svæðislíkan, sem tekur saman þá vitneskju sem fyrir liggur, er búið til og þróast áfram eftir því sem fleiri gagna er aflað.

Annað stig: Ítarleg athugun svæðis (e. Detailed Site Investigation)
Forathugunin stýrir því í hvaða átt ítarlega athugunin fer, t.d. varðandi sýnatökustaði. Sýnataka til efnagreiningar á m.a. olíuefnum, þungmálmum og rokgjörnum lífrænum efnum og úrvinnsla úr niðurstöðum efnagreininganna. Huglægt svæðislíkan þróast áfram.

Þriðja og fjórða stig: Úrbótaaðgerðir og vöktun
Með því að framkvæma fyrsta og annað stig mengunarrannsóknanna er hægt að meta með hnitmiðuðum hætti umfang og gerð þeirra úrbóta sem þörf er á. Vöktunartímabil fylgir í kjölfar úrbótaaðgerða til að meta framgang þeirra.

Verkís sér einnig um loftgæðamælingar. Loftgæði hafa bein áhrif á heilsu okkar og umhverfi, því er mikilvægt að halda þeim gæðum innan viðunandi marka. Ásamt grunnvatns- og vatnsgæðamælingum.


Tengiliðir

Erla Guðrún Hafsteinsdóttir
Umhverfis- og jarðefnafræðingur Ph.D.
Svið: Samgöngur og umhverfi
egh@verkis.is

Hugrún Gunnarsdóttir
Fiskifræðingur M.Sc. / Viðskiptastjóri
Svið: Samgöngur og umhverfi
hug@verkis.is


Áhersla á heilsu og umhverfisvernd

Verkís annast mengunarrannsóknir og umhverfismælingar til að greina mengun, meta áhættu og stuðla að heilbrigðu umhverfi. Með markvissum rannsóknum á jarðvegi, grunnvatni, vatni og loftgæðum finnum við mögulegar mengunaruppsprettur og leggjum til viðeigandi úrbætur.


Exstensive Geothermal Energy Solutions


Lorem ipsum dolor sit amet, consectetuer adipiscing elit, sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magna aliquam erat volutpat.


Verkís rannsakar sögu og aðstæður svæða til að greina mögulega mengunarhættu áður en framkvæmdir eða breytingar á landnotkun hefjast. Með heimildaöflun, vettvangsskoðunum og mati á fyrirliggjandi gögnum fáum við skýrari mynd af mengunarstöðu svæðis og þörf fyrir frekari rannsóknir.


Við framkvæmum sýnatökur og efnagreiningar á jarðvegi og grunnvatni til að greina meðal annars olíuefni, þungmálma og rokgjörn lífræn efni. Einnig annast Verkís mælingar á loftgæðum og vatnsgæðum til að meta ástand umhverfisins og áhrif mögulegrar mengunar.


Niðurstöður rannsókna nýtast til að meta umfang mengunar og skilgreina nauðsynlegar úrbótaaðgerðir. Verkís veitir ráðgjöf við val á viðeigandi úrræðum og annast eftirfylgni og vöktun til að meta árangur aðgerða og tryggja að umhverfisgæði séu innan viðunandi marka.


Greining og vöktun umhverfisáhrifa

Verkís annast mengunarrannsóknir og umhverfismælingar til að greina mengun og meta áhrif hennar á heilsu fólks og vistkerfi. Með sérfræðiþekkingu á jarðvegsrannsóknum, grunnvatni, vatnsgæðum og loftgæðamælingum metum við ástand svæða og greinum þörf fyrir úrbætur. Við fylgjum verkefnum frá fyrstu forathugunum til ítarlegra rannsókna og vöktunar, með áherslu á markvissar aðgerðir, áreiðanlegar niðurstöður og heilbrigt umhverfi.


Gerð áætlana um nauðsynlegar aðgerðir til að bregðast við mengun og bæta umhverfisástand svæða.


Skipulag og framkvæmd sýnatöku til að greina mengun og meta umhverfisástand.


Mælingar og athuganir á vettvangi til að afla upplýsinga um ástand og mögulega mengun svæða.


Skipulag og framkvæmd vöktunar, meðal annars vegna starfsleyfa og til að fylgjast með árangri úrbótaaðgerða.


Ráðgjöf og aðstoð við BREEAM-vottun bygginga með áherslu á sjálfbærni, umhverfisáhrif og vistvænar lausnir.


Mælingar á loftgæðum til að greina mengandi efni og meta áhrif þeirra á heilsu og umhverfi.


Mælingar og rannsóknir á grunnvatni til að meta vatnsgæði og greina mögulega mengun.


Sýnataka og greining á vatni til að meta gæði þess og fylgjast með breytingum á ástandi vatns.


Rannsóknir og mælingar á jarðvegi til að greina mengun, meta umfang hennar og skilgreina þörf fyrir úrbætur.



Verkefni okkar á sviði mengunarrannsókna

Kynntu þér hvernig Verkís hjálpar verkkaupum að greina mengun og meta umhverfisástand svæða með faglegum rannsóknum og ráðgjöf. Með sérfræðiþekkingu á jarðvegsmengun, vatnsgæðum og loftgæðamælingum greinum við mögulega mengunarþætti og metum þörf fyrir úrbætur. Við fylgjum verkefnum frá fyrstu forathugunum til ítarlegra rannsókna og vöktunar, með áherslu á áreiðanlegar niðurstöður, heilsu fólks og vernd vistkerfa.


Með sjálfbærni að leiðarljósi við hreinsunaraðgerðir

N1 Hofsósi

N1 Hofsósi: Rannsóknir, úrbótaaðgerðir og vöktun vegna bensínleka.


Orkuskipti á flugvöllum

Keflavíkurflugvöllur

ISAVIA Keflavíkurflugvelli: Vöktun grunnvatns vegna starfsleyfis. Mengunarrannsóknir og úrbótaaðgerðir


Skemmtiferðaskip tengt við rafmagn í Reykjavík

Sundahöfn

Faxaflóahafnir: Mengunarrannsóknir vegna dýpkunar Sundahafnar