Skip to content

Verkefni

Endurgerð Óðinstorgs

Óðinstorg hafði þjónað sínum tilgangi sem bílastæði í miðborg Reykjavíkur í hartnær sjötíu ár áður en hafist var handa við að gjörbreyta því.

Framkvæmdir á Óðinstorgi fólust í endurnýjun yfirborðs á torgsvæði og hluta götu.



Yfirlit verkefnis

Komið var fyrir setpöllum, stökum sætum, leikhólum, pollum og hjólagrindum. Framkvæmdir í Týsgötu fólu í sér endurnýjun yfirborðs götu og göngusvæða auk gróðursetningar. 

Blágrænar ofanvatnslausnir hreinsa afrennsli af götum og lóðum, hægja á rennsli og minnka magn sem fer í fráveitukerfi og umhverfið. Endurgerð Óðinstorgs er tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar og Veitna við innleiðingu á blágrænum ofanvatnslausnum í þéttbýli. Um tvær gerðir af ofanvatnslausnum er að ræða; gegndræpa gangstétt og regnbeð.

Gegndræp gangstétt virkar þannig að á milli hellusteina eru fúgur, 6 til 10 millimetra og því töluvert breiðari en í venjulegri hellulögn. Fúgurnar eru fylltar með sérvöldu, fínefnalitlu steinefni sem hleypir vatni auðveldlega í gegnum sig niður í styrktarlag. Með þessum hætti hægir á rennsli vatns og því er hleypt niður í undirliggjandi jarðveg eða inn í jarðvatnslögn í undirlaginu sem er tengd fráveitukerfinu. Regnbeð tekur við afrennsli af götum og þökum nærliggjandi húsa. Þar er vatn leitt í gegnum sérvalið ræktunarlag sem hreinsar mengun og fínagnir úr afrennslinu og hægir á rennsli áður en vatnið hripar ofan í jarðveg.

Verkís sá um lýsingarhönnun á Óðinstorgi en markmiðið var að nota lýsingu til að gera umhverfið leikandi og eru ljósgjafarnir felldir inn í landslag torgsins; steypta bekki, handrið og stalla, sem á þann hátt verða götugögn í sjálfu sér. Þá er ljósmengun og orkunotkun haldið í lágmarki með því að nota nákvæma og nútímalega ljóstækni.

Verkefnið var tilnefnt til lýsingarverðlaunanna Darc Awards í febrúar 2021. Það hlaut Íslensku lýsingarverðlaunin 2022 og þar með tilnefningu til Norrænu lýsingarverðlaunanna sama ár.  

Áskorunin

Áskorunin var að umbreyta svæði sem hafði lengi verið nýtt sem bílastæði í lifandi og aðlaðandi almenningsrými. Jafnframt þurfti að leysa með sjálfbærum hætti meðhöndlun ofanvatns í þéttu borgarumhverfi og skapa lýsingu sem styrkti upplifun og ásýnd torgsins án óþarfa ljósmengunar.

Lausnin okkar

Endurgerð torgsins sameinaði nýtt yfirborð, setsvæði, gróður, göngusvæði og aðstöðu fyrir hjólreiðafólk. Blágrænar lausnir voru samþættar hönnun svæðisins til að taka við ofanvatni, hægja á rennsli og draga úr álagi á fráveitukerfi.

Gegndræp gangstétt gerir vatni kleift að síast niður í undirlagið í gegnum sérstakar fúgur milli hellusteina. Regnbeð taka við afrennsli af götum og þökum og leiða það í gegnum sérvalið ræktunarlag sem hreinsar mengun og fínagnir og hægir á rennsli.

Verkís hannaði einnig lýsingu torgsins með það að markmiði að hún yrði órjúfanlegur hluti af landslaginu. Ljósgjafar voru felldir inn í bekki, handrið og stalla og þannig varð lýsingin hluti af sjálfum götugögnum torgsins.

Niðurstaðan

Óðinstorg varð að nýju almenningsrými í miðborg Reykjavíkur þar sem áhersla er lögð á dvöl, samveru, gróður og sjálfbæra meðhöndlun ofanvatns. Lýsingin styrkir jafnframt karakter torgsins og skapar leikandi upplifun eftir að dimma tekur.

Verkefnið hefur hlotið viðurkenningar fyrir lýsingarhönnun sína. Það var tilnefnt til Darc Awards árið 2021, hlaut Íslensku lýsingarverðlaunin 2022 og þar með tilnefningu til Norrænu lýsingarverðlaunanna sama ár.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Óðinstorg, Reykjavík


Verktími:


2014 – 2015, 2019 – 2020



Þjónusta Verkís




Skoðaðu verkefnin okkar

Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.



Heimsmarkmið