Skip to content

Verkefni

Lýsing á gámasvæði Grundartangahafnar

Verkís annaðist lýsingar- og raflagnahönnun vegna endurnýjunar lýsingar á gámasvæði Faxaflóahafna á Grundartanga.

Með nýrri LED-lýsingu hafa birtuskilyrði og öryggi á svæðinu verið bætt, um leið og dregið hefur verið úr ljósmengun og glýju.



Yfirlit verkefnis

Endurnýjun lýsingar á gámasvæði á baksvæði Tangabakka er hluti af áframhaldandi uppbyggingu Grundartangahafnar. Með framkvæmdinni var verið að bæta aðstöðu fyrir meðhöndlun og geymslu gáma og skapa betri aðstæður fyrir daglega starfsemi hafnarinnar. Lýsing svæðisins var jafnframt endurnýjuð til að bæta öryggi og vinnuaðstæður starfsfólks og annarra sem fara um svæðið.

Verkefnið fólst í heildarendurskoðun á lýsingu gámasvæðisins, þar sem eldri ljósabúnaður var fjarlægður og ný LED-lýsing sett upp. Við endurhönnunina var horft til þess að uppfylla kröfur um lýsingu hafnarsvæða, tryggja jafna ljósdreifingu og draga úr áhrifum lýsingarinnar á nærliggjandi svæði.

Áskorunin

Úttekt á fyrirliggjandi lýsingu og mælingar á birtustigi leiddu í ljós að lýsingin var langt undir þeim kröfum sem gerðar eru til gámasvæða. Eldri ljósabúnaður og ómarkviss ljósdreifing ollu jafnframt glýju og ljósmengun sem hafði áhrif á nærumhverfið. Áskorunin fólst því í að hanna nýja lýsingu sem tryggði nægilegt og jafnt birtustig fyrir starfsemi hafnarinnar, en takmarkaði um leið óþarfa ljósdreifingu og glýju. Mikilvægt var að finna lausn sem uppfyllti viðeigandi kröfur og staðla án þess að lýsingin hefði neikvæð áhrif á nærliggjandi svæði.

Lausnin okkar

Verkís annaðist lýsingar- og raflagnahönnun vegna framkvæmdarinnar. Í upphafi var gerð úttekt á eldri lýsingu og birtustig mælt um allt svæðið. Niðurstöðurnar voru síðan nýttar til að endurhanna lýsinguna og ákvarða útfærslu nýs ljósabúnaðar. Öllum eldri lömpum var skipt út fyrir nýja LED-lampa. Við hönnunina var lögð áhersla á að tryggja góða og jafna lýsingu á gámasvæðinu, draga úr glýju og beina ljósinu þangað sem þess var þörf. Notast var við lýsingarhönnunarforritið DIALux til að reikna út ljósdreifingu og sannreyna birtuskilyrði áður en ráðist var í framkvæmdina.

Niðurstaðan

Með nýrri LED-lýsingu hafa birtuskilyrði á gámasvæðinu batnað til muna og öryggi starfsfólks og annarra sem fara um svæðið aukist. Jafnframt hefur dregið úr glýju og óþarfa ljósdreifingu til nærliggjandi svæða. Breytingarnar hafa fengið jákvæð viðbrögð frá starfsfólki fyrirtækja á Grundartanga og íbúum í nágrenninu. Verkefnið sýnir hvernig vönduð lýsingarhönnun getur stuðlað að betra og öruggara vinnuumhverfi og jafnframt dregið úr áhrifum lýsingar á nærumhverfið.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Grundartangahöfn


Verktími:


2026



Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið