Skip to content

Verkefni

Holmen sundhöll

Holmen sundhöllin er framsækin og nútímaleg sundhöll á tveimur hæðum byggð með nýjustu tækni.

Verkefnið er unnið í samvinnu við Arkís arkitekta sem annast arkitektúr, landslags- og innanhússarkitektúr.



Yfirlit verkefnis

Á aðalhæðinni er átta brauta 25 m sundlaug með lyftanlegum botni á þremur brautum fyrir breiðan hóp notenda, kennslulaug með lyftanlegum botni, nuddpottar, líkamsræktaraðstaða, lítill samkomusalur með félagsaðstöðu, búningsherbergi og veitingasalur. Gert er ráð fyrir að um 400 manns geti verið samtímis í sundlauginni. Áhorfendapallar eru í sundlaugarsalnum.
 
FutureBuilt í Noregi hefur valið Holmen svømmehall í Asker sem eitt af 50 fyrirmyndarverkefnum, en sundhöllin uppfyllir öll skilyrði fyrir vistvæna  byggingu.  Umhverfisvæn orka spilar lykilhlutverk á svæðinu en orkan er sótt úr 15 orkubrunnum við húsið ásamt því að nýta sólarorku til raforkuframleiðslu. FutureBuilt félagsskapurinn hefur það að markmiði að koma á fót svokölluðum loftslagshlutlausum byggðasvæðum með arkitektúr af hæstum gæðum með því að koma fram með 50 fyrirmyndarverkefni, sem eiga að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 50% innan sviða umferðar, orku- og efnisnotkunar.
 
Mikilvægustu loftslagsverkefnin fyrir sundhöllina eru:
 
  • Sundhöllin verði orkuhlutlaust hús (n. passivhus)
  • 650 m² af sólarrafhlöðum komið fyrir á þakinu og veggjum sundhallarinnar
  • Sólarfangarar í bílastæði
  • 15 borholur (orkubrunnar, um 200 m að dýpt) til orkuöflunar með varmadælum
  • Varmaendurvinnsla með varmadælum úr grávatni (frárennsli frá sturtum m.a.), frá sundlaug og loftræsisamstæðum
  • Upplýsingar um orkunotkun og orkuframleiðslu á skjá í anddyri
  • Bílastæði í lágmarki og góðar aðstæður fyrir hjól og rafmagnsbíla
  • Notkun á svokallaðri lágkolefnissteypu

Auk þessara þátta komu vitaskuld margar aðrar umhverfisvænar lausnir við sögu ekki hvað síst er varðar val á byggingarefnum, notkun LED lýsingar, orkusparandi búnaði, endurvinnslu á orku o.fl. Húsið er gríðarlega vel einangrað og nánast gert loftþétt auk þess sem gluggaflötur er í lágmarki. Þegar laugar eru ekki í notkun er lyftanlegu botnunum lyft upp í yfirborð til að lágmarka orkutap. Þessar aðgerðir miða að því að lágmarka orkuþörf og skapa þannig þann möguleika að hægt sé að uppfylla skilyrði um að 50% af orkuþörfinni sé aflað á lóðinni.

Orkunnar sem sundhöllin mun nota verður að helmingi aflað á lóð hennar með áðurnefndum varmadælum, sólarrafhlöðum og sólarföngurum. Þá er vert að geta þess að sólarfangararnir í bílastæðinu geta einnig nýst á sumrin til að skila orku til baka í borholurnar þ.a. svo þær kólni ekki of mikið og verði sjálfbærar auk snjóbræðslu á vetrum. Þegar framleiðsla orku hjá sundhöllinni er meiri en þörf er á til reksturs hennar er rafmagnið selt á rafmagnskerfi rafmagnsveitunnar.
 
Verkís annast verkefnastjórn, gerð kostnaðaráætlana, hönnun allra verkfræðilegra þátta, hönnun gatnakerfis, jarðtækni, umsjón með löggiltum byggingarleyfum, gerð útboðsgagna, ráðgjöf á framkvæmdartíma og gerð rekstrarhandbókar. Verkefnið er unnið samkvæmt BIM aðferðafræðinni.
 
Sundhöllin Holmen valin bygging ársins 2017 í Noregi.
25m

Lengd sundlaugar



650M²

Sólarrafhlöður á þaki og veggjum



2

Hæðir

Áskorunin

Holmen sundhöllin er umfangsmikið og tæknilegt mannvirki þar sem gera þurfti miklar kröfur til orkunýtingar, innivistar og rekstrar. Markmiðið var að skapa nútímalega sundhöll sem gæti tekið á móti fjölbreyttum hópi notenda en jafnframt uppfyllt metnaðarfull markmið um orkunotkun og minni umhverfisáhrif.

Sérstök áskorun fólst í því að samþætta fjölbreytt orkukerfi og nýta orku úr eigin lóð, meðal annars með jarðvarma, sólarorku og varmaendurvinnslu. Jafnframt þurfti að samræma alla verkfræðihönnun, innviði og framkvæmdaþætti í stóru og flóknu BIM-verkefni.

Lausnin okkar

Verkís sá um heildstæða verkfræðihönnun og verkefnastjórn og vann náið með Arkís arkitektum. Orkulausnir hússins voru hannaðar með það að markmiði að lágmarka orkuþörf og auka hlut endurnýjanlegrar orku.

Alls eru 15 orkuholur, um 200 metra djúpar, nýttar með varmadælum til orkuöflunar. Einnig eru 650 m² af sólarrafhlöðum á þaki og veggjum og sólarfangarar á bílastæði. Varmaendurvinnsla úr grávatni, sundlaug og loftræsikerfum dregur enn frekar úr orkuþörf.

Byggingin er mjög vel einangruð og loftþétt og gluggaflötur er takmarkaður til að minnka varmatap. Lyftanlegir botnar í laugum eru nýttir til að draga úr orkutapi þegar laugar eru ekki í notkun. Verkefnið var unnið samkvæmt BIM-aðferðafræðinni sem studdi við samþættingu allra hönnunarþátta.

Niðurstaðan

Holmen sundhöllin er framsækið sundmannvirki þar sem arkitektúr, verkfræði og orkunýting vinna saman. Fjölbreytt úrval sund- og þjónusturýma gerir bygginguna að aðstöðu fyrir breiðan hóp notenda, á sama tíma og umfangsmiklar orkulausnir draga úr orkuþörf og auka hlut orku sem framleidd er á lóðinni.

Verkefnið var valið bygging ársins í Noregi árið 2017 og var jafnframt valið af FutureBuilt sem eitt af 50 fyrirmyndarverkefnum með áherslu á minni losun gróðurhúsalofttegunda og sjálfbæra þróun.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Asker – Noregi


Stærð:


5.300 m²


Verktími:


2013 – 2017





Skoðaðu verkefnin okkar

Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.



Heimsmarkmið