Skip to content

Verkefni

Sundhöll Reykjavíkur

Verkís kom að viðbyggingu sunhallarinnar í Reykjavík sem er ein af þekktari byggingum landsins.

Viðbyggingin er tveggja hæða frambygging við Barónsstíg og lágbygging sem liggur hornrétt frá henni meðfram lóðarmörkum til suðurs.



Yfirlit verkefnis

Aðalinngangur er næst tengibyggingu. Frambygging og lágbygging meðfram suðurlóðarmörkum mynda ásamt eldri byggingu og veggjum skjólgott laugasvæði mót suðri. Heildarflatarmál byggingarinnar eru.þ.b. 1.000 fermetrar. Lagnakjallari er auk þess um 350 fermetrar. Laugarsvæði er um 682 fermetrar. Stærð lóðar er um 3.484 fermetrar. Á laugarsvæði er 25 metra útilaug með fjórum brautum auk eimbaðs, tveggja heitra potta, nuddpotts og vaðlaugar.

Viðbyggingin við Sundhöll Reykjavíkur v/Barónsstíg verður fyrsta verkefnið hjá Reykjavíkurborg sem verður vottuð af BREEAM og er stefnt að einkunninni Very Good.

Verkís sá um eftirtalda hönnun í verkinu:

  • Öll burðarvirki auk grundunar
  • Öll lagnakerfi byggingarinnar s.s. fráveitu- og drenlagnir, vatns-, hita-, og snjóbræðslukerfi auk fráveitulagar fyrir lóð Sundhallarinnar
  • Öll sundlaugarkerfi viðbyggingar og samþættingu fyrir sundlaugarkerfi Sundhallarinnar
  • Loftræsikerfi byggingar
  • Öll raforkuvirki byggingarinnar þ.m.t. lýsingu innan húss sem utan Sundhallarinnar ásamt hönnun á öllum sérkerfum
  • Úttektir og ástandsskoðun á Sundhöllinni
  • Gerð verkteikninga, verklýsingar, magnskrár og kostnaðaráætlana
  • Lýsingarhönnun

Lýsingarteymi Verkís var tilnefnt til íslensku lýsingarverðlaunanna árið 2019 fyrir fjölda verkefna, þar á meðal fyrir lýsingarhönnun sundhallarinnar.

Aðrir þættir sem Verkís sá um:

  • Verkís hefur séð um alla ráðgjöf varðandi umhverfisvottunina, þ.m.t. úttektir matsmanns, efnisval og aðra vinnu vegna BREEAM.
  • Verkís sá einnig um vinnu vegna BREEAM á framkvæmdatíma, úttektum og gagnasöfnun (Post Construction). Þá hefur Verkís unnið að skipulagi viðtökuprófana, úttektum vegna viðtökuprófana, (Commissioning), gagnasöfnun og skýrslugerð fyrir Breeam.
  • Einnig sá Verkið um ráðgjöf vegna viðbyggingar varðandi hönnun, útboð og eftirlit vegna samþættingu sérkerfa milli nýja og gamla hússins. Þau sérkerfi sem um er að ræða eru: innbrotakerfi, kallkerfi (hátalarakerfi), neyðarhnappakerfi, myndavélakerfi og stjórnkerfi. Einnig vann Verkís ráðgjöf vegna viðbyggingar varðandi tækilegt eftirlits og efnissamþykkta á flóknum tæknibúnaði sundlaugarkerfa og undirkerfa sem mynda sundlaugarkerfið í heild sinni.

Verkið er unnið með VA Arkitektum.
Viðbyggingin var tekin í notkun 3. desember 2017.

350m²

Lagnakjallari



682M²

Laugarsvæði



3484m²

Stærð lóðar

Áskorunin

Megináskorunin var að tengja nýja viðbyggingu við eldri Sundhöll Reykjavíkur og tryggja að byggingarnar og öll tæknikerfi þeirra störfuðu sem ein heild. Verkefnið fól því í sér umfangsmikla endurskoðun og ástandsskoðun á eldri byggingu auk hönnunar nýrra kerfa og samþættingar þeirra við þau sem fyrir voru.

Sérstakar kröfur fylgja einnig sundlaugarmannvirkjum, þar sem samræma þarf flókin sundlaugarkerfi, lagnir, loftræsingu, rafkerfi og sérkerfi. Jafnframt þurfti að uppfylla kröfur BREEAM og vinna markvisst að umhverfisvottun bæði á hönnunar- og framkvæmdatíma.

Lausnin okkar

Verkís sá um heildstæða verkfræðihönnun viðbyggingarinnar, þar á meðal burðarvirki og grundun, allar lagnir, sundlaugarkerfi, loftræsingu, raforkuvirki og lýsingu. Einnig var unnið að samþættingu sundlaugarkerfa nýju byggingarinnar við kerfi eldri Sundhallarinnar.

Við hönnun og framkvæmd var sérstaklega unnið með samþættingu sérkerfa milli nýja og gamla hússins, meðal annars innbrots-, kallkerfis-, neyðarhnapps-, myndavéla- og stjórnkerfa. Verkís kom jafnframt að tæknilegu eftirliti og efnissamþykktum fyrir flókinn tæknibúnað sundlaugarkerfanna.

Umhverfisvottun var hluti af verkefninu frá upphafi. Verkís sá um ráðgjöf vegna BREEAM, þar á meðal efnisval, úttektir, gagnasöfnun, viðtökuprófanir og commissioning á framkvæmdatíma.

Niðurstaðan

Viðbyggingin skapaði nýja og fjölbreytta aðstöðu við Sundhöll Reykjavíkur og styrkti heildarsvæði sundhallarinnar með nýju laugasvæði, pottum, vaðlaug og annarri þjónustuaðstöðu.

Verkefnið sameinar nýbyggingu og eldri mannvirki með umfangsmikilli samþættingu verkfræði- og sérkerfa. Jafnframt var lögð áhersla á umhverfisvæna hönnun og BREEAM-vottun. Viðbyggingin var tekin í notkun 3. desember 2017.

Lýsingarteymi Verkís var jafnframt tilnefnt til íslensku lýsingarverðlaunanna 2019 fyrir verkefni, þar á meðal lýsingarhönnun Sundhallarinnar.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Barónsstígur 45a – 101 Reykjavík


Stærð:


1.140 m²


Verktími:


2015 – 2017






Heimsmarkmið