Verkefni
Bjólfur – snjóflóðavarnir
Snjóflóð úr Bjólfi eru vel þekkt og í febrúar 1882 féll þar eitt mannskæðasta snjóflóð á Íslandi þegar 24 fórust.
Verkefni
Snjóflóð úr Bjólfi eru vel þekkt og í febrúar 1882 féll þar eitt mannskæðasta snjóflóð á Íslandi þegar 24 fórust.
Austan Seyðisfjarðarkaupstaðar rís Bjólfstindur fremri, rúmlega 1.000 metra hár en í um 650 metra hæð í fjallinu er stallur sem mótast af hólum og hryggjum. Talið er að tíðni flóða ofan Brúnar sé mun hærri en neðan hennar og eiga garðarnir að koma í veg fyrir að flóð þaðan nái yfir Brún og niður í byggðina.
Í júní árið 2003 var hafist handa við uppbyggingu snjóflóðavarna á Brún í Bjólfi. Um er að ræða tvo snjóflóðavarnargarða, leiðigarð og þvergarð. Garðarnir eru 20 metra háir og er neðri hluti þeirra hlaðinn með hallanum 1:1,3–1:1,5. Efri hluti þeirra, 10 metrar, er brattur 1:0,25, byggður með netgrindum. Leiðigarðurinn er tæplega 200 metra langur og þvergarðurinn um 450 metra. Jarðvegsefni í garðana var að öllu leyti tekið af vinnusvæðinu en gert er ráð fyrir að heildarrúmmál fyllinga í garðana hafi verið rúmlega 210.000 fermetrar.
Verkís annaðist verkhönnun þvergarðs og leiðigarðs ásamt gerð útboðsgagna.
Hæð stallsins þar sem upptakasvæði flóða eru
Lengd leiðigarðs
Meginmarkmið verkefnisins var að verja byggðina á Seyðisfirði gegn snjóflóðum sem gætu fallið úr upptakasvæðum ofan Brúnar. Hönnunin þurfti að taka mið af mikilli hæð varnarvirkjanna og krefjandi landslagi í fjallinu.
Verkís annaðist verkhönnun tveggja snjóflóðavarnargarða á Brún – leiðigarðs og þvergarðs – ásamt gerð útboðsgagna. Garðarnir eru 20 metra háir og eru neðri hlutar þeirra byggðir með halla 1:1,3–1:1,5, en efri 10 metrarnir eru brattari og byggðir upp með netgrindum.
Leiðigarðurinn er tæplega 200 metra langur og þvergarðurinn um 450 metrar. Jarðvegsefni í garðana var að öllu leyti tekið af vinnusvæðinu.
Tvö umfangsmikil varnarvirki voru hönnuð til að stöðva eða beina snjóflóðum áður en þau ná yfir Brún og niður í byggðina. Með hönnun garðanna var jafnframt nýtt efni úr framkvæmdasvæðinu í uppbyggingu varnarvirkjanna.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Seyðisfjörður
Stærð:
20 m á hæð og 650 m á lengd
Verktími:
2002 – 2004
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.