Skip to content

Verkefni

Drangagil

Snjóflóðavarnargarðar á Neskaupsstað þar sem snjóflóðahætta er í stórum hluta vegna flóða úr nokkrum giljum og skálum í fjallinu ofan byggðarinnar.

Snjóflóðatæknileg hönnun varnarvirkjanna í Drangagili er talsvert óhefðbundin.



Yfirlit verkefnis

Snjóflóðahætta er í stórum hluta Neskaupstaðar vegna flóða úr nokkrum giljum og skálum í fjallinu ofan byggðarinnar. Árið 1997 var hafinn undirbúningur að snjóflóðavörnum á Drangagils-svæðinu, en þar féll flóð langt inn í núverandi byggð árið 1894. Snjóflóðavarnarvirkjunum á Drangagilssvæðinu má skipta í þrjá hluta: stoðvirki á upptakasvæði snjóflóða í Drangagili, rúmlega 1000 m af 3,5-4,0 m háum snjóflóðavarnarnetum. Snjóflóðakeilur í tveimur röðum ofan byggðarinnar, 13 keilur alls. Keilurnar eru mjög brattar fjallsmegin, 10 m háar og hver keila um 10-12 m breið í toppinn. Þvergarður, 400 m langur í um 100 m fjarlægð ofan efstu húsa. Garðurinn er 17 m hár með mjög bratta hlið fjallsmegin.
 
Heildarrúmmál fyllinga í þvergarð og keilur er um 260.000 m³. Brattar hliðar fjallsmegin eru byggðar upp með netgrindum. Snjóflóðatæknileg hönnun varnarvirkjanna í Drangagili er talsvert óhefðbundin. Sérstaklega er mjög óvenjulegt að blanda saman varnarvirkjum af ólíkri gerð og er slík uppbygging varnarvirkja nánast óþekkt í heiminum. Einnig var í undirbúningi varnanna og í tilraunum sem þeim tengdust lagður grunnur að mun traustari hönnunarforsendum fyrir virkni snjóflóðakeilna en áður lágu fyrir.
 
Verkís annaðist frumathugun, tæknilega snjóflóða hönnun, útboðsgögn vegna hönnunar garðs, keilna og byggingar stoðvirkja, tæknilega ráðgjöf á framkvæmdatíma og kortagerð.
13

Snjóflóðakeilur í tveimur röðum



400m

Lengd þvergarðs



17m
Mesta hæð þvergarðs

Áskorunin

Snjóflóðahættan á svæðinu er fjölþætt og getur komið úr mismunandi upptakasvæðum ofan byggðarinnar. Við hönnun var því nauðsynlegt að taka mið af ólíkum flóðaleiðum og aðstæðum í fjallinu.

Sérstök áskorun fólst í því að hanna varnarkerfi þar sem ólíkum tegundum varnarvirkja var beitt saman. Slík blönduð uppbygging var á þessum tíma afar óvenjuleg á alþjóðavísu.

Lausnin okkar

Verkís annaðist frumathugun og tæknilega snjóflóðahönnun varnarvirkjanna. Kerfið samanstendur af stoðvirkjum á upptakasvæði í Drangagili, rúmlega 1.000 metrum af snjóflóðavarnanetum, 13 snjóflóðakeilum og 400 metra löngum þvergarði ofan byggðarinnar.

Í tengslum við undirbúning og tilraunir verkefnisins var jafnframt unnið að því að styrkja hönnunarforsendur fyrir virkni snjóflóðakeilna. Verkís vann útboðsgögn vegna garðs, keilna og stoðvirkja, auk þess að veita tæknilega ráðgjöf á framkvæmdatíma og annast kortagerð.

Niðurstaðan

Útfærslan varð að umfangsmiklu og óhefðbundnu snjóflóðavarnakerfi þar sem ólík varnarvirki vinna saman að vernd byggðarinnar. Verkefnið lagði jafnframt mikilvægan grunn að traustari hönnunarforsendum fyrir snjóflóðakeilur og þróun snjóflóðavarna.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Neskaupsstaður


Stærð:


260.000 m³


Verktími:


1997 – 2002


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið