Skip to content

Verkefni

Faxagarður Reykjavík

Skip þurfa ekki aðeins orku þegar þeim er siglt um heimsins höf, mörg þeirra þurfa einnig rafmagn þegar þau liggja við bryggju.

Verkís kom að hönnun og útboðsgögnum fyrir staðlaða landtengingu skemmtiferðaskipa við Faxagarð í Reykjavík, sem gerir skipum kleift að nýta rafmagn úr landi meðan þau liggja við bryggju.



Yfirlit verkefnis

Verkís hf kom að gerð útboðsgagna og eftirlits með lágspennu landtengingu fyrir skemmtiferðaskip við Faxagarð við gömlu höfnina í Reykjavík. Um er að ræða útboðsgögn á sérhæfðum lágspennu landtengibúnaði sem er byggður upp samkvæmt alþóðlegum staðli IEC-PAS-80005-3 sem tekur á staðlaðri landtengingu skemmtiferðaskipa á lágspennu. Ákveðið var að byggja upp tvær tengingar á Faxagarði önnur væri 3x350A tenging allt að 1 MW og hin væri 4x350A allt að 1,5MW tenging.  Kerfin geta boðið upp á fjölbreytt úrval af spennum og tíðni.  Hægt er að óska eftir 400V spennu á 50 riða tíðni, 440V spennu á 50 eða 60 riða tíðni og 690V spennu á 50 eða 60 riða tíðni. Að auki er boðið upp á tengingu við kaldavatnslögn úr landi með þessum búnaði. Húsið var hannað af Batteríið Arkitektum en Verkís sá um alla vinnu við það.

Skemmtiferðaskipið MS MAUD frá norsku skipaútgerðinni Hurtigruten var fyrsta skipið til að nýta sér þessa tengingu og höfðu þeir sett upp búnað hjá sér til að tengjast þessari stöðluðu tengingu.

Norska fyrirtæki PSW Power&Automation var verktakinn sem sá um hönnun, útvegun, uppsetning og prófun á sérhæfðum landtengibúnaði með aðstoð frá íslenska rafverktakafyrirtækið H&S rafverktakar.

2

Landtengingar




1MW

Afl annarrar tengingar


Áskorunin

Skemmtiferðaskip þurfa umtalsvert rafmagn á meðan þau liggja við bryggju. Markmiðið var að koma upp sérhæfðri og staðlaðri landtengingu við Faxagarð sem gæti mætt mismunandi þörfum skipa og stuðlað að minni notkun skipanna á eigin vélbúnaði meðan þau eru í höfn.

Jafnframt þurfti að tryggja að búnaðurinn uppfyllti alþjóðlega staðla og gæti boðið upp á mismunandi spennu og tíðni.

Lausnin okkar

Verkís annaðist hönnun hússins, gerð útboðsgagna og eftirlit með framkvæmd lágspennu-landtengingarinnar. Hönnunin byggði á alþjóðlega staðlinum IEC-PAS-80005-3 fyrir staðlaðar landtengingar skemmtiferðaskipa.

Tvær tengingar voru settar upp við Faxagarð, önnur allt að 1 MW og hin allt að 1,5 MW. Kerfið styður mismunandi spennu og tíðni, auk þess sem mögulegt er að tengja kaldavatnslögn úr landi.

Niðurstaðan

Faxagarður býður skemmtiferðaskipum upp á nútímalega og staðlaða lausn til að tengjast rafmagni úr landi meðan þau liggja við bryggju. Fyrsta skipið til að nýta tenginguna var MS Maud, sem var búið nauðsynlegum búnaði til að tengjast landtengingunni.

Lausnin styrkir innviði Reykjavíkurhafnar og skapar möguleika á að draga úr notkun skipa á eigin rafstöðvum meðan þau eru í höfn.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Reykjavík


Stærð:


1,5 MW


Verktími:


2021 – 2023





Skoðaðu verkefnin okkar

Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.



Heimsmarkmið