Skip to content

Verkefni

Vör farþegamiðstöð

Verkís hefur komið að þróun nýrrar fjölnota farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna við Skarfabakka í Sundahöfn frá fyrstu stigum verkefnisins.

Verkís hóf aðkomu sína að verkefninu með þarfagreiningu og hefur síðan komið að undirbúningi útboðs og vali á hönnunarteymi. Verkefnið markar mikilvægt skref í uppbyggingu innviða við Sundahöfn og skapar nýja aðstöðu fyrir farþega og fjölbreytta starfsemi hafnarsvæðisins.



Yfirlit verkefnis

Á hugmyndastigi verkefnisins fól Faxaflóahafnir Verkís að vinna þarfagreiningu fyrir nýja farþegamiðstöð. Þar sem margir ólíkir hagsmunaaðilar koma að verkefni af þessu tagi var lögð áhersla á að kalla saman sjónarmið þeirra og greina þarfir og væntingar til mannvirkisins.

Verkís stýrði vinnu með hagsmunaaðilum og vann skýrslu sem innihélt hagsmunaaðilagreiningu, drög að húsrýmisáætlun og tæknilega forsögn, auk kostnaðaráætlunar, lífsferilskostnaðar (LCC) og tímaáætlunar fyrir næstu skref verkefnisins.

Í framhaldinu kom Verkís að undirbúningi útboðs og gerð útboðsgagna á grundvelli þarfagreiningarinnar og stýrði jafnframt vinnu dómnefndar. Útboðið var unnið sem samstarfssamkeppni, þar sem arkitektar, verkfræðingar og verktaki mynduðu teymi og lögðu sameiginlega fram tillögu að hönnun og framkvæmd verkefnisins.

Þrjú teymi tóku þátt í samkeppninni. Tillögurnar voru metnar af tveimur óháðum dómnefndum, þar sem annars vegar var horft til gæða hönnunar, innra skipulags og kostnaðarmarkmiða og hins vegar til hæfni teymanna til samstarfs við Faxaflóahafnir um fullnaðarhönnun og byggingu mannvirkisins.

Skóflustunga að nýju farþegamiðstöðinni var tekin við Skarfabakka og markar það upphaf framkvæmda við verkefnið.

5700

Stærð nýrrar farþegamiðstöðvar



4000

Farþegar sem miðstöðin getur sinnt á dag



940

Sæti í fjölnotasal

Áskorunin

Að móta skýran grunn fyrir fjölnota farþegamiðstöð þar sem ólíkir hagsmunir, þarfir og væntingar fjölmargra aðila færu saman. Jafnframt þurfti að tryggja að verkefnið hefði skýra tæknilega, fjárhagslega og rekstrarlega umgjörð áður en ráðist væri í hönnun og framkvæmdir.

Lausnin okkar

Verkís stýrði þarfagreiningu verkefnisins, greindi sjónarmið hagsmunaaðila og mótaði húsrýmisáætlun, tæknilega forsögn, kostnaðaráætlun, LCC-greiningu og tímaáætlun.

Í framhaldinu sá Verkís um gerð útboðsgagna og stýrði vinnu dómnefndar í samstarfssamkeppni þar sem þverfagleg teymi lögðu fram tillögur að hönnun, framkvæmd og samstarfi.

Niðurstaðan

Verkefnið hefur farið frá hugmynd og þarfagreiningu yfir í hönnun og framkvæmd nýrrar fjölnota farþegamiðstöðvar við Skarfabakka.

Með markvissum undirbúningi, víðtæku samráði og vel skilgreindu útboðsferli lagði Verkís grunn að verkefni þar sem gæði hönnunar, kostnaður og framkvæmdahæfni fara saman. Nýja farþegamiðstöðin verður mikilvæg viðbót við innviði Faxaflóahafna og uppbyggingu Sundahafnar.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Skarfabakki


Stærð:


5.700 m²


Verktími:


2025 – 2026


Þjónusta Verkís




Skoðaðu verkefnin okkar

Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.



Heimsmarkmið