Verkefni
Vaðlaheiðargöng
Vaðlaheiðargöng bæta samgöngur milli Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslu með öruggri og greiðri tengingu um Vaðlaheiði.
Með göngunum styttist vegalengd á milli Akureyrar og Húsavíkur um 15,7 km.
Verkefni
Vaðlaheiðargöng bæta samgöngur milli Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslu með öruggri og greiðri tengingu um Vaðlaheiði.
Með göngunum styttist vegalengd á milli Akureyrar og Húsavíkur um 15,7 km.
Göngin eru 7,4 km löng milli Eyjafjarðar, gegnt Akureyri og Fnjóskadal. Með göngunum styttist vegalengd á milli Akureyrar og Húsavíkur um 15,7 km og ekki þarf lengur að fara fjallaveginn um Víkurskarð þar sem færð spillist gjarnan að vetrum.
Heildarlengd vegskála er um 320 m, 84 m Eyjafjarðarmegin og 224 m Fnjóskadalsmegin. Í göngunum eru 14 útskot, þar af fjögur snúningsútskot. Inni í göngunum eru fjögur steypt tæknirými og tvö við hlið vegskála. Jarðgöngin eru um 7,17 km löng í bergi og heildarlengd vegskála er 320 m, samtals 7,5 km. Þversnið er samkvæmt norskum reglum og nefnist T9,5, breidd þess er um 9,5 m í veghæð, þverskurðarflatarmál 66,7 m2. Verkið náði ennfremur til lagningar um 1,2 km langs vegar í Eyjafirði ásamt hringtorgi og um 2,9 km vegkafla í Fnjóskadal, eða samtals um 4,1 km. Í lagningu vega er einnig innifalin gerð vegtenginga á báðum stöðum.
Lengd jarðganga
Nýr vegur
Útskot í göngunum
Ferðaleiðin milli Akureyrar og Húsavíkur lá áður um Víkurskarð, þar sem færð gat spillst verulega yfir vetrarmánuðina. Markmiðið var að bæta samgöngur og umferðaröryggi með öruggari og áreiðanlegri leið milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals.
Verkefnið fól einnig í sér umfangsmikla vegagerð beggja vegna ganganna og þurfti að samræma jarðgöng, vegi, vegtengingar og tengd mannvirki.
Lausnin var 7,4 km löng jarðgöng undir Vaðlaheiði ásamt nýjum vegköflum og vegtengingum beggja vegna. Göngin voru hönnuð samkvæmt norskum reglum og eru um 9,5 metrar að breidd í veghæð.
Innan ganganna eru 14 útskot, þar af fjögur snúningsútskot, auk tæknirýma sem styðja við rekstur og öryggi mannvirkisins. Verkefnið náði einnig til um 4,1 km af nýjum vegum, hringtorgs í Eyjafirði og tenginga við núverandi vegakerfi.
Vaðlaheiðargöng hafa stytt vegalengd milli Akureyrar og Húsavíkur um 15,7 km og skapað áreiðanlegri samgöngutengingu sem er síður háð erfiðum vetraraðstæðum.
Göngin styrkja tengsl milli Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslu og bæta aðgengi fyrir íbúa, atvinnulíf og ferðafólk á svæðinu.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Eyjafjörður
Stærð:
7,4 km
Verktími:
2011 – 2018
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.