Skip to content

Verkefni

Dýrafjarðargöng

Dýrafjarðargöng bæta verulega samgöngur á Vestfjörðum og tryggja öruggara heilsárssamband milli byggðarlaga.

Tilkoma ganganna styttir leið milli Ísafjarðar og Reykjavíkur allt að 429 km.



Yfirlit verkefnis

Samvinna og samskipti á landssvæði eins og Vestfjörðum eru háð því að samgöngur séu greiðar. Með það í huga er núverandi vegasamband á milli Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslu talið óviðunandi; hvort sem er út frá vegtæknilegu sjónarmiði, af öryggis ástæðum eða fyrir þær sakir að vegurinn er ófær stóran hluta vetrar og þar er snjóflóðahætta oft mikil.

Því hefur verið ákveðið að ráðast í framkvæmdir til bóta á þessu; til að tryggja góðar og öruggar samgöngur og koma um leið á heilsárs vegasambandi á milli þessara sýslna. Tilkoma ganganna styttir leið milli Ísafjarðar og Reykjavíkur allt að 429 km. Vegstæðið nær frá Mjólká í Arnarfirði að Dýrafjarðarbrú.

Jarðgöngin eru 5,7 km löng í bergi og heildarlengd vegskála er um 300m. Göngin eru boruð og sprengd, styrkt með bergboltum og sprautusteypu. Tvær akreinar eru í göngunum  en auk þess eru í göngunum neyðarútskot á 500 m fresti. Þversnið ganganna, sem er samkvæmt norskum staðli, er hringlaga og er breidd þeirra um 8,0 m í veghæð en leyfileg hæð ökutækja er 4,2m. Verkið nær ennfremur til lagningar um 8 km nýs vegar.

Verkís annast hönnunarstjórn, hönnun burðarvirkja, vega utan ganga, gerð teikningar af umferðarskiltum, umsjón með gerð útboðsgagna og gerð þrívíddarmynda fyrir umhverfismatsskýrslu.

6km

Lengd jarðganga



8km

Nýr vegur



300m

Heildarlengd vegskála

Áskorunin

Núverandi vegasamband á milli Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslu var ófullnægjandi vegna erfiðra vegtæknilegra aðstæðna, mikillar snjóflóðahættu og þess að vegurinn var oft ófær yfir vetrartímann. Markmiðið var því að skapa öruggara og áreiðanlegra heilsárssamband á svæðinu.

Jafnframt þurfti að hanna jarðgöng og nýtt vegakerfi við krefjandi jarðfræðilegar og landslagslegar aðstæður.

Lausnin okkar

Verkís kom að verkefninu með fjölbreytta verkfræðiráðgjöf og hafði umsjón með hönnunarstjórn. Verkís annaðist meðal annars hönnun burðarvirkja og vega utan ganga, gerð teikninga fyrir umferðarskilti og umsjón með gerð útboðsgagna.

Við hönnunina var tekið mið af öryggi vegfarenda og rekstrarskilyrðum ganganna. Göngin eru tvíbreið, um 8 metrar að breidd í veghæð og með neyðarútskotum á 500 metra fresti. Þá voru unnar þrívíddarmyndir fyrir umhverfismatsskýrslu til að sýna mannvirkin og áhrif þeirra á umhverfið.

Niðurstaðan

Dýrafjarðargöng skapa öruggara og greiðara heilsárssamband á Vestfjörðum og draga verulega úr þeim hindrunum sem íbúar og atvinnulíf svæðisins bjuggu við vegna vetraraðstæðna.

Með 5,7 km löngum jarðgöngum og um 8 km af nýjum vegi hefur orðið til mikilvæg samgöngutenging sem styrkir byggð, atvinnulíf og samskipti á Vestfjörðum.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar


Stærð:


6 km


Verktími:


2009 – 2022






Heimsmarkmið