Verkís leiðir gerð umhverfisyfirlýsinga fyrir malbik
Verkís hefur unnið að gerð og útgáfu umhverfisyfirlýsinga (EPD blöð) fyrir tvær lykilvörur Malbikunarstöðvarinnar Höfða, Hylit 11 og Hylit 16. Um er að ræða heitblandaðar malbikstegundir sem innihalda steinefni, bik og önnur íblöndunarefni, auk 10-20% endurunnið malbik.
Í verkefninu vann Verkís náið með Malbikunarstöðinni Höfða og hafði umsjón með gerð umhverfiyfirlýsinganna frá upphafi til enda. Verkís framkvæmdi lífsferilsgreiningar (LCA) fyrir báðar vörurnar, tryggði að öllum viðeigandi kröfum og stöðlum væri fylgt, sá um uppsetningu umhverfisyfirlýsinganna og annaðist samskipti við vottunaraðila þar til útgáfuferli lauk .
EPD blöðin hafa verið yfirfarin og staðfest af óháðum þriðja aðila og eru nú aðgengileg á vef EPD Hub. Með vottuðum umhverfisyfirlýsingum fyrir Hylit 11 og Hylit 16 eru nú aðgengilegar upplýsingar um umhverfisáhrif vörunnar sem nýtast hönnuðum, verkkaupum og öðrum hagaðilum.
Hvað er umhverfisyfirlýsing?
Umhverfisyfirlýsing kallast á ensku Environmental Product Declaration (EPD), er skjal sem veitir staðlaðar upplýsingar um umhverfisáhrif vöru yfir lífsferil hennar. EPD blöð byggja á lífsferilsgreiningu (LCA) og tekur saman niðurstöður greiningarinnar á skýran og gagnsæjan hátt.
Umhverfisyfirlýsingar veita hlutlausar og staðlaðar upplýsingar um umhverfisáhrif vöru. Skjölin eru yfirfarin, vottuð og gefin út af óháðum þriðja aðila. Umhverfisyfirlýsing er unnin samkvæmt alþjóðlegum stöðlum, meðal annars ISO 14040, ISO 14044 og EN15804, sem tryggja að upplýsingar um umhverfisáhrif vörunnar séu samanburðarhæfar við aðrar sambærilegar vörur.
Umhverfisyfirlýsingar eru sífellt mikilvægari fyrir framleiðendur þar sem ríkari kröfur eru á að slík skjöl séu til staðar fyrir byggingargeirann.
Verkís getur útbúið umhverfisyfirlýsingar og séð um ferlið frá upphafi til enda. Allt frá gagnasöfnun og lífsferilsgreiningu til samskipta við vottunaraðila og útgáfu skjalsins.
Þjónusta verkís : Umhverfisyfirlýsing vöru (EPD blað).
