Verkefni
Árið 2019 skrifaði Verkís undir samning við Vegagerðina um forhönnun á nýrri brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi með það að markmiði að tvöfalda veginn yfir ána.
Verkefni
Árið 2019 skrifaði Verkís undir samning við Vegagerðina um forhönnun á nýrri brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi með það að markmiði að tvöfalda veginn yfir ána.
Núverandi brú yfir Jökulsá er 160 metrar og var byggð 1967. Hún liggur yfir 9,5 km langa jökulá sem rennur úr Sólheimajökli.
Eitt af skilgreindum markmiðum Samgönguáætlunar ríkisstjórnarinnar er að útrýma einbreiðum brúm á þjóðvegum þar sem fleiri en 200 ökutæki fara um á sólarhring að meðaltali (ÁDU).
Verkís lauk forhönnun á brúnni árið 2019 og skrifaði í apríl árið 2020 undir samning um fullnaðarhönnun nýju brúarinnar. Hönnunin mun byggja á forhönnuninni. Þá mun Verkís einnig vinna útboðsgögn að undanskilinni verklýsingu sem verður skrifuð af Vegagerðinni.
lengd núverandi brúar
Lengd Jökulsár á Sólheimasandi
Ökutæki á dag
Núverandi brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi er einbreið og var byggð árið 1967. Markmið verkefnisins er að tvöfalda veginn yfir ána og bæta umferðaröryggi og samgöngur á þjóðveginum. Verkefnið er jafnframt hluti af markmiði stjórnvalda um að útrýma einbreiðum brúm þar sem umferð er mikil.
Verkís annaðist forhönnun nýrrar brúar og lauk henni árið 2019. Í kjölfarið tók Verkís að sér fullnaðarhönnun brúarinnar og gerð útboðsgagna, að undanskilinni verklýsingu sem Vegagerðin sér um. Hönnunin byggir á þeirri forhönnun sem Verkís vann.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Suðurland
Stærð:
160 m
Verktími:
2019 – 2021
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.