Verkefni
Í dag er um 80 prósent af rafmagni í Georgíu framleitt með vatnsafli og um 20 prósent með jarðgasi.
Markmiðið er að geta veitt fleirum í landinu sjálfbæra orku og er vatnsaflsvirkjunin Akhalkalaki HPP liður í því.
Verkefni
Í dag er um 80 prósent af rafmagni í Georgíu framleitt með vatnsafli og um 20 prósent með jarðgasi.
Markmiðið er að geta veitt fleirum í landinu sjálfbæra orku og er vatnsaflsvirkjunin Akhalkalaki HPP liður í því.
Akhalkalaki vatnsaflsvirkjunin nýtir fall tveggja vatnsfalla; Paravani með fallhæð 61 metra og virkjað rennsli 15 rúmmetra á sekúndu og Korkhi með fallhæð 72 metra og virkjað rennsli 2,8 rúmmetra á sekúndu.
Frá inntaksmannvirki í Paravani er vatninu veitt um 3,3 kílómetra leið í þrýstipípu sem er 2,8 metrar í þvermál. Frá inntaksmannvirki Korkhi verður vatninu veitt um 2 kílómetra langa pípu sem er 1,2 metri í þvermál. Bæði inntaksmannvirkin verða útbúin með hreinsibúnaði fyrir rusl en talsvert af slíku berst niður árnar.
Sérfræðingar Verkís unnu hagkvæmniathugun og útboðsgögn í undirbúningsfasa virkjunarinnar, fóru yfir tilboð verktaka ásamt því að veita ráðgjöf vegna tilboðanna.
Hlutfall raforkuframleiðslu Georgíu
Fallhæð Paravani
Fallhæð Korkhi
Að nýta vatnsafl tveggja vatnsfalla, Paravani og Korkhi, til að auka framboð á sjálfbærri raforku í Georgíu. Verkefnið krafðist þess að hanna hagkvæma lausn fyrir tvö aðskilin inntaksmannvirki og langar þrýstipípur, auk þess að tryggja að rusl í vatnsföllunum truflaði ekki rekstur virkjunarinnar.
Verkís vann hagkvæmniathugun og útboðsgögn fyrir virkjunina á undirbúningsstigi. Sérfræðingar Verkís komu einnig að yfirferð tilboða verktaka og veittu ráðgjöf varðandi tilboðin.
Verkefnið lagði grunn að nýtingu vatnsafls Paravani og Korkhi til framleiðslu endurnýjanlegrar raforku og styður þannig við markmið Georgíu um aukið framboð sjálfbærrar orku.
Verkefnið í hnotskurn
Staðsetning:
Georgía
Stærð:
9,1 megavött og 50 gígavattstundir
Verktími:
2018 – 2025
Kynntu þér hvernig við höfum aðstoðað viðskiptavini við að leysa flóknar tæknilegar, umhverfislegar og rekstrartengdar áskoranir með nýstárlegum verkfræðilausnum og stefnumótandi ráðgjöf á fjölbreyttum mörkuðum.