Yfirlit verkefnis
Markmið verkefnisins er að skapa lifandi og aðlaðandi menningarhús sem verður miðstöð fjölbreyttrar menningarstarfsemi á Sauðárkróki. Í húsinu verða sýningarsalir, bókasafn, listasafn, byggðasafn og skjalasafn, auk fjölnota salar fyrir myndlistarsýningar, sviðslistir og aðra menningarviðburði.
Í húsinu verða einnig sérhönnuð varðveislurými sem uppfylla kröfur ríkisins um aðbúnað opinberra safna. Við hönnun er lögð áhersla á hagkvæmni, gæði og umhverfislega ábyrgð, auk þess sem byggingin fellur vel að landslagi Flæðanna á Sauðárkróki.
Verkefnið er unnið í kjölfar hönnunarsamkeppni þar sem Arkís arkitektar hlutu fyrstu verðlaun. Auk Verkís og Arkís taka Landhönnun og Brekke & Strand Akustikk þátt í hönnunarteyminu.
Gert er ráð fyrir að menningarhúsið verði tekið í notkun fyrir árslok 2027.
Áskorunin
Að skapa fjölnota menningar- og safnamiðstöð sem getur sameinað ólíka starfsemi – frá safnastarfi og varðveislu menningarverðmæta til sýninga, sviðslista og samfélagsviðburða. Húsið þarf jafnframt að uppfylla strangar tæknilegar kröfur og tryggja góða upplifun gesta og starfsfólks.
Lausnin okkar
Verkís kemur að hönnun hússins á fjölmörgum sviðum verkfræði, þar á meðal burðarvirkjum, lagnakerfum og loftræsingu, rafkerfum og lýsingu, brunatækni og hljóðvist. Sérstök áhersla er lögð á góða hljóðvist, orkunýtingu og tæknilega útfærslu sem styður við fjölbreytta notkun byggingarinnar.
Niðurstaðan
Ný menningar- og safnamiðstöð mun skapa nýjan sameiginlegan vettvang fyrir menningu, listir og fræði í Skagafirði. Með samþættri hönnun arkitekta og verkfræðinga verður lögð áhersla á gæði, hagkvæmni, sjálfbærni og góða upplifun notenda.
Gert er ráð fyrir að húsið verði tekið í notkun fyrir árslok 2027 og verði um leið mikilvægur menningarlegur innviður fyrir Sauðárkrók og Skagafjörð.