Skip to content
01/06/2026

Þúsundþjalasmiður sem tengir saman kynslóðir

Már Hallgeirsson umsjónarmaður fasteigna hjá Verkís

Fáir þekkja sögu Verkís jafn vel og Már Hallgeirsson, umsjónarmaður fasteigna hjá Verkís. Í rúma sex áratugi hefur hann komið að fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtækið og orðið órjúfanlegur hluti af daglegu lífi þess. Í tilefni af 80 ára afmæli hans var litið til baka á einstaka starfsævi sem spannar allt frá fyrstu verkefnum hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen til dagsins í dag.

Már hefur sinnt fjölbreyttum störfum í gegnum árin, allt frá smíðavinnu til umsjónar fasteigna, og verið órjúfanlegur hluti af sögu og menningu fyrirtækisins. Hann er þekktur fyrir dugnað, útsjónarsemi og hjálpsemi og nýtur mikillar virðingar meðal samstarfsfólks.

Hann heldur einnig utan um laugardagskaffihitting fyrrverandi og núverandi starfsfólks, sem hefur verið fastur liður í áratugi og tengir saman kynslóðir innan fyrirtækisins. Þrátt fyrir að vera áttræður er Már enn við störf og hefur engan sérstakan áhuga á að hætta. Saga hans endurspeglar vel þá áherslu Verkís að reynsla, þekking og samhugur séu meðal verðmætustu auðlinda fyrirtækisins.

Lestu viðtalið við Má og kynntu þér einstaka sögu manns sem hefur verið hluti af vegferð Verkís í meira en 60 ár og tengir saman fortíð, nútíð og framtíð fyrirtækisins.

Már Hallgeirsson umsjónarmaður fasteigna hjá Verkís

Deila þessari færslu