Skip to content
09/03/2026

Þórey Edda fjallaði um útboðsgögn í Svansvottuðum byggingum á málþingi Svansins

© Svanurinn
Þórey Edda talar hér við þingið
Svanurinn

Svansvottaðar byggingar njóta sífellt meiri vinsælda á Íslandi og hefur uppbygging þeirra aukist verulega á undanförnum árum. Þann 5. mars stóðu Svanurinn og Iðan fræðslusetur fyrir málþingi um Svansvottaðar byggingar þar sem fjallað var um reynslu, áskoranir og lausnir í slíkum verkefnum.

Á málþinginu komu saman fulltrúar frá byggingargeiranum, umsækjendur, leyfishafar, ráðgjafar, verktakar og verkkaupar, til að miðla reynslu og ræða hvernig best sé að vinna að verkefnum sem uppfylla kröfur Svansvottunar.

Mikilvægi skýrra útboðsgagna

Á meðal fyrirlesara var Þórey Edda Elíasdóttir, umhverfisverkfræðingur hjá Verkís, sem flutti erindi undir yfirskriftinni „Reynslusaga: Útboðsgögn“. Í erindinu fjallaði hún um hversu mikilvægt sé að kröfur um Svansvottun séu skýrar strax í upphafi verkefna og að þær séu vel útfærðar í útboðsgögnum.

Þórey Edda benti á að þegar kröfur um umhverfisvottun séu óskýrar eða ófullnægjandi í útboðsferlinu geti það skapað áskoranir síðar í framkvæmd verkefna. Skýr og vel skilgreind útboðsgögn geti hins vegar auðveldað samstarf allra aðila verkefnisins og sparað bæði tíma og kostnað þegar á líður.

Vettvangur fyrir reynslumiðlun

Dagskrá málþingsins var fjölbreytt og tók meðal annars til góðra ráðlegginga um ferli Svansvottunar, efnisvals í Svansvottuðum byggingum og samstarfs ólíkra aðila í verkefnum. Auk fyrirlestra fóru fram umræður þar sem þátttakendur skiptust á reynslu og ræddu áskoranir sem upp koma í slíkum verkefnum.

Markmið málþingsins var að skapa vettvang fyrir faglegt samtal og reynslumiðlun innan byggingargeirans, þar sem sífellt fleiri verkefni byggja á kröfum um aukna sjálfbærni og umhverfisábyrgð.

Heimsmarkmið

Þórey Edda talar hér við þingið
© Svanurinn