Þjónusta

Úrgangur og endurvinnsla

Verkís veitir ráðgjöf og þjónustu sem stuðlar að sjálfbærri úrgangsstjórnun, endurvinnslu og bættri nýtingu auðlinda.

Með markvissum lausnum er unnið að því að draga úr sóun og umhverfisáhrifum í samræmi við lög, reglugerðir og vottunarkerfi.

Ráðgjöf um úrgang og endurnýtingu

Sorphirðulausnir. Sorphirða fer fram frá heimilum, fyrirtækjum eða móttöku- og grenndarstöðvum samkvæmt lögum og reglugerðum. Sorphirðulausnir miða að því að gera ferlið skilvirkara, sjálfbærara og auðveldara í framkvæmd.

Urðunarstaðir eru svæði ætluð til losunar úrgangs sem ekki er hægt að endurvinna eða nýta á annan hátt. Urðun skal fara fram samkvæmt starfsleyfi og á þann hátt að hún valdi sem minnstum áhrifum á umhverfið.

Endurvinnsla. Ýmis byggingarefni — svo sem viður, málmar, steypa og gler — má endurvinna eða endurnýta til að draga úr sóun og minnka kolefnisspor framkvæmda. Dæmi um endurnýtingu er að smíða ný húsgögn úr gömlum viðarinnréttingum eða nota mulið gler og steypu sem fyllingarefni í nýjum framkvæmdum.

Úrgangsáætlanir. Markmið úrgangsáætlana er að tryggja góða stjórn og meðferð úrgangs sem fellur til við framkvæmdir og rekstur. Með skipulagðri áætlanagerð má stuðla að aukinni endurvinnslu og endurnýtingu og draga úr urðun.

Þjónusta

  • Ráðgjöf við þróun og útfærslu sorphirðulausna
  • Lausnir tengdar vigtun, skráningu og gagnasöfnun úrgangs
  • Ráðgjöf við hönnun og rekstur urðunarstaða
  • Hönnun á gassöfnunarkerfum (t.d. metan)
  • Umsjón og aðstoð við starfsleyfismál
  • Ráðgjöf um endurvinnslu og endurnýtingu byggingarefna
  • Innleiðing endurvinnsluaðferða sem hluti af hönnunarferli
  • Vinnsla áætlana til að uppfylla kröfur vottunarkerfa BREEAM og Svansins
  • Ráðgjöf um flokkun og meðhöndlun byggingarúrgangs

Tengiliðir

Hugrún Gunnarsdóttir
Fiskifræðingur M.Sc. / Viðskiptastjóri
Svið: Samgöngur og umhverfi
hug@verkis.is