02/09/2019

Aðaltorg rís hratt í Reykjanesbæ

Aðaltorg rís hratt í Reykjanesbæ
Hótel Aðaltorg

Aðaltorg rís hratt í Reykjanesbæ. Hröð breyting hefur orðið á verkstað við Aðaltorg í Reykjanesbæ að undanförnu, en þar rís nú Courtyard by Marriott hótelið sem byggt er úr stáleiningum og kom með skipi til Helguvíkurhafnar í byrjun ágúst.

Á um viku tíma frá því skipið lagðist að bryggju var búið að reisa allar einingarnar og þannig komin 150 fullfrágengin hótelherbergi í bygginguna.

Byggingin hefur þannig tekið á sig endanlegt form. Nú er unnið að frágangi á þakvirki og utanhússklæðningu ásamt vinnu í hótelgöngum við tengingu lagna, loftræsingar og raflagna. Fyrirhugað er að byggingin verði tilbúin um næstu áramót.

Fyrirtækið Aðaltorg ehf er byggingaraðili á Aðaltorgi, ÍAV eru aðalverktakar, Arkís arkitektar verkefnisins og Verkís hefur séð um alla verkfræðihönnun og ráðgjöf.

Sjá hér myndskeið af byggingaráformum á Aðaltorgi, frá framleiðslu eininga og framkvæmdum á verkstað:

https://youtu.be/kMnHoiNKD10

Sjá nánar umfjöllun á vef Víkurfrétta

Fyrri umfjöllun um hótelið:

Verkefni á heimasíðu Verkís: Aðaltorg 

Uppfært 4.5.2020: Hótelið hefur fengið nafnið Aðaltorg.

Aðaltorg rís hratt í Reykjanesbæ
Hótel Aðaltorg