Með sjálfbærni að leiðarljósi
Sjálfbærni Verkís
Hlutverk Verkís er að skapa verðmæti og styðja þróun samfélagsins og innviða þess með faglegri ráðgjöf og hönnun. Verkís er með skýra framtíðarsýn og hefur sett sér stefnumið með áherslu á viðskiptavini, starfsfólk og samfélagið. Áherslur í starfseminni eru settar fram í sjálfbærni-, þjónustu- og mannauðsstefnum sem jafnframt styðja vel við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og UN Global Compact.
Verkís leggur mikinn metnað í að allir geti notið góðs af starfsemi fyrirtækisins. Við hvetjum til ábyrgðar í störfum okkar, horfum til framtíðar með sjálfbærni að leiðarljósi, og höfum þannig jákvæð áhrif á samfélagið og umhverfi okkar. Starfsfólk Verkís leggur sig fram við að leita lausna og veita þjónustu sem samræmist meginviðmiðum um sjálfbæra þróun.
Sjálfbærni hjá Verkís
Helstu niðurstöður sjálfbærniskýrslu 2025
Heildarlosun Verkís 2025
Losun gróðurhúslofttegunda frá starfsemi Verkís árið 2025 var 362 tonn CO₂-ígildi, sem er 9% lægra en árið 2024. Kolefnisspor fyrirtækisins felst bæði í beinni og óbeinni losun GHL sem tengjast rekstri Verkís. Bein losun er sú losun GHL sem fyrirtæki veldur beint, vegna bruna jarðefnaeldsneytis í eigin bifreiðum. Óbein losun er losun frá keyptri orku, losun í aðfangakeðju og notkun vöru, en sú losun er stærsti hluti kolefnissporsins.
Helstu niðurstöður sjálfbærniskýrslu 2025
Uppruni losunar 2025
Heildarlosun frá umfangi 1 og 2 árið 2025 var samtals 78,6 tonn CO₂íg., sem er 2% aukning frá árinu 2024. Það má rekja til aukinnar notkunar jarðefnaeldsneytis í fyrirtækjabílum Verkís. Bílafloti Verkís er 58% af vistvænni gerð, þ.e. rafmagns- eða tvinnbílar.
Heildarlosun í umfangi 3 árið 2025 var 285 tonn CO₂ ígilda, sem er 11% lægra en árið 2024. Helsta ástæðan fyrir þessum samdrætti er veruleg minnkun á kolefnisspori tölvubúnaðar í innkaupum, sem í heildina dróst saman um 35% milli ára. Vinnuferðir starfsfólks eru þó stærsti losunarþátturinn
í heildarkolefnisspori Verkís, ásamt akstri starfsfólks til og frá vinnu.
