Verkefni
Deiliskipulag Álftaness
Undir nýtt deiliskipulag Álftaness falla svæðin Breiðumýri, Krókur, Helguvík, Skógtjörn og Kumlamýri.
Verkefni
Undir nýtt deiliskipulag Álftaness falla svæðin Breiðumýri, Krókur, Helguvík, Skógtjörn og Kumlamýri.
Í Breiðumýri er gert ráð fyrir allt að 252 íbúðum í níu fjölbýlishúsakjörnum. Í Króki er gert ráð fyrir allt að 51 íbúð í sjö raðhúsalengjum. Í Helguvík er miðað við allt að 23 einbýlishús við tvær götur og í Kumlamýri er gert ráð fyrir allt að 40 íbúðum í 20 parhúsum. Miðað er við lágreista byggð og að ekkert húsanna verði hærra en þrjár hæðir.
Verkís vann umhverfismat, skipulag veitna og gerði greiningu á hljóðvist og mögulegum úrbótum. Verkís tók einnig þátt í að vinna umferðarskipulag. Verkís mun hanna gatna- og stígakerfi auka fráveitu fyrir útboðsgögn.
Staðsetning:
Álftanes
Verktími:
2018-